
Einu sinni var raunamæddur risi … Svona hefst sagan um raunamædda risann sem aldrei hló. Risinn hittir mörg dýr á landi og í sjó á ferð sinni. En hvar skyldi hlátur vera að finna? Ævintýrið um raunamædda risann kom fyrst út árið 1995.

Raunamæddi risinn
eftir Áslaugu Jónsdóttur
UM BÓKINA – HUGMYNDIN
Hugmyndin að bókinni kviknaði þegar ég var komin með nýfædda dóttur í fangið og var að leita að myndabókum um íslensku dýrin. Á þeim tíma voru þær ekki margar. Harðspjaldabók Halldórs Péturssonar var að vísu til endurútgefin og þar var bóndinn við torfbæinn sinn og sigaði hundi. Sú bók er fagurt barn síns tíma, en mér þótti hún gefa örlítið ranga mynda af sveitum landsins. Ég ákvað að reyna að gera tímalausari bók með ævintýri sem tengdi dýrin saman. Teikningarnar vildi ég hafa nokkuð raunsæislegar eins og mér fannst við hæfi í bendibók handa börnum sem eru að læra óbjöguð orð yfir hlutina, dýrin og hljóðin eins og þau eru.
MYNDLÝSINGAR – EFNI OG AÐFERÐ
Myndirnar eru unnar með blandaðri tækni. Dýrin og risinn eru máluð með vatnslitum, útlínur teiknaðar með svörtum kolblýanti. Dýrin og risinn voru svo klippt út og límd á bakgrunn. Í bakgrunn myndanna notaði ég handgerðan lokta-pappír, þurrkaðar íslenskar plöntur og fræ, fjörusand, sterkjulím og matt gelefni. Með því að nota jurtirnar vildi ég búa til tengingu við náttúru og náttúrulega liti, flóru og fánu.

HUGMYNDABANKINN
LEIKIR OG VERKEFNI
DÝRIN Í KÓR: Þátttakendur fá að draga miða með heiti dýrsins (eða fá heiti dýrsins hvíslað í eyra). Svo er sagan lesin. Þegar nafn og hljóð dýrsins kemur upp þurfa þátttakendur að láta í sér heyra með tilheyrandi hljóðum. Og þá má heyra hvaða dýri hver og einn hefur fengið úthlutað. Og auðvitað eru allir börnin sem hlægja að lokum!
SPURNINGAR OG ÞANKAR
DÝRAHLJÓÐIN eru margvísleg. Þau eru ekki öll jafn augljós og í sumum dýrum heyrist sjaldan. Það má þó vel ímynda sér hin skrýtnustu hljóð eins og romsan sem hér fer á eftir gefur til kynna. Við höfum sérstök orð yfir mörg hljóðin. Eins og til dæmis orðið jarm. En samt hljómar hljóðið meira eins og: „meee“. Kannist þið við öll orðin í myndinni hér neðar? Eigið þið uppáhalds dýr? Hvaða hljóð gefur það frá sér? Hvað ef risinn hefði gengið um í einhverju framandi landi? Hvernig gætu dýrin í frumskóginum hljómað?
HLÁTUR. Er það rétt að dýrin hlægi ekki? Hlátur þeirra er kannski bara öðruvísi en okkar. Það er talað um mávahlátur. Hlæja mávar? Hlæja hýenur?

MYNDLISTARKVEIKJUR
NÁTTÚRAN er endalaus uppspretta fyrir myndlist! Safnið laufum, fræjum, sandi, mold. Notið vatnsleysanleg íblöndunarefni og/eða lím og skapið myndir með þessum efnum. Pressuðum laufum má raða saman en þau má líka klippa til og breyta þannig forminu. Það er hægt að taka þrykk af laufum og greinum, nota sem stimpla eða ná afþrykki með því að nudda áferðinni á pappírinn. Og öllum aðferðum má blanda saman!
DÝR eru dásamlegar kveikjur að myndum. Þau þurfa ekki að vera raunsæisleg en það að skoða fjaðrir, skott og hala, klaufir og horn getur kveikt hugmyndir að ævintýralegum dýrum – furðudýrum í fantasíu!
KLIPPIMYNDIR eða samklippur eru frábær aðferð til að nýta allskonar pappír og myndefni. Það er hægt að blanda saman lituðum örkum, pappír sem hefur verið málað eða þrykkt á, myndum úr tímaritum, gjafapappír o.fl.
VATNSLITIR OG TEIKNING: Skoðið hvernig litirnir eru í bókinni. Prófið að mála mynd með svipuðum litum og í bókinni. Prófið að mála sömu myndina í skærum litum! Berið saman!
TEXTI OG MYNDIR © Áslaug Jónsdóttir
UPPLÝSINGAR UM BÓKINA:
Útgefandi: Mál og menning 1995
Endurútgefin 2026
ISBN 978-9979-3-5564-9
Myndstef styrkti endurútgáfuna.
Ensk þýðing tiltæk. | English translation available.
BÓKADÓMAR OG UMFJÖLLUN:
BÓKADÓMAR OG UMFJÖLLUN:
Umsagnir um fyrri útgáfu bókarinnar:
„Textinn er stuttur og fjallar að mestu leyti um dýrin sem risinn hittir á vegferð sinni. Dýrin gefa frá sér ýmiss konar hljóð. Hænurnar gagga, svínin rýta, tófan ýlfrar og spóinn vellir og þessi hljóð eiga líka hvert sitt heiti. Þessi mikla fjölbreytni í dýrahljóðum í íslenskunni er sérstök og skemmtilegt að draga þau fram í bók fyrir svona ung börn. Þegar þessi saga er lesin fyrir þau hlýtur það að auðga orðaforða þeirra.
Myndir Áslaugar eru í mjög fallegum jarðarlitum og risinn með sinn raunamædda svip er sérlega vel unninn. Myndirnar eru raunsæjar eins og hentar vel þessum aldursflokki. Áslaug hefur áður sent frá sér mjög listfengar barnabækur og ekki er þessi síðri en þær sem á undan eru komnar. Áslaug er óðum að skapa sér sess sem einn af okkar bestu myndabókahöfundum og sérstaka athygli vekur hversu mikil fjölbreytni er í bókum hennar.“ – Sigrún Klara Hannesdóttir, Morgunblaðið, 1. desember 1995
„Einu sinni var raunamæddur risi sem aldrei hló. Hann hélt af stað langa ferð í leit að hlátrinum. Þannig hefst þessi litla saga sem er svo góð handa yngstu lesendunum. Engin átök milli góðs og ills og ofbeldi sem ung börn hafa ekki forsendur til að ráða við, heldur lítil saga sem segir okkur ekki einungis það að hláturinn sé eftirsókarverður heldur einnig það að hann býr hjá börnunum. Áslaug Jónsdóttir hefur lag á því að segja yngstu lesendunum litlar fallegar sögur, skemmtilega myndskreyttar …“ – Sonja B. Jónsdóttir, VERA, 1. desember 1995
⚙️ Meira efni verður bætt inn síðar. Endilega sendið mér hugmyndir! | Sorry! No English version available! ⚙️