
Útgáfutíðindi: Þá er hún loksins fáanleg aftur, myndabókin um Raunamædda risann sem kom fyrst út hjá Máli og menningu árið 1995. Útgefandi er sem fyrr MM / Forlagið, og það er einmitt verið að dreifa bókinni í verslanir í dag!
Hugmyndin að bókinni kviknaði þegar ég var komin með nýfædda dóttur í fangið og var að leita að myndabókum um íslensku dýrin. Á þeim tíma voru þær ekki margar. Harðspjaldabók Halldórs Péturssonar var að vísu til endurútgefin og þar var bóndinn við torfbæinn sinn að sigaði hundi. Sú bók er fagurt barn síns tíma, en mér þótti hún gefa örlítið ranga mynda af sveitum landsins. Ég ákvað að reyna að gera tímalausari bók með ævintýri sem tengdi dýrin saman. Teikningarnar vildi ég hafa nokkuð raunsæislegar eins og mér fannst við hæfi í bendibók handa börnum sem eru að læra óbjöguð orð yfir hlutina, dýrin og hljóðin eins og þau eru.
Risinn er í örlítið breyttu og stærra broti en sagan er hin sama. Myndstef styrkti endurútgáfuna.
Hér á þessar síðu 🔗 má svo finna ítarefni um bókina: nánari upplýsingar og hugmyndir sem kunna að nýtast í leik og starfi með börnum.

Book release: Today my picturebook The Glum Giant (Raunamæddi risinn) is out in the stores! It was originally published by Mál og menning in 1995 and is now finally available again. The book features a slightly different, larger format, though the story remains the same. My project for the reprint received a grant from Myndstef (The Icelandic Visual Art Copyright Association).
Once upon a time there was a glum giant… That is how the story of the giant who never laughed begins. On his journey, the giant meets many animals on land and at sea. But where might laughter be found?
The idea for the book came to me when I was holding my newborn daughter and looking for picture books about Icelandic animals. At the time, there weren’t many available. I decided to try to create (hopefully) a timeless book featuring a fairy tale that connected the animals. I wanted the illustrations to be fairly realistic – fitting, I felt, for a book designed to help children learn accurate names for the animals, and words for the sounds as they truly are.
You can find additional material about the book here on this page 🔗, such as ideas that may be useful for play and activities with children. For now unfortunately only available in Icelandic!
LINKS:
English translation available via RLA Forlagid Rights Agency – Contact RLA here.
Raunamæddi risinn í vefverslunum | Raunamæddi risinn in online bookshops:
Forlagið vefverslun | Penninn Eymundsson | Bóksala stúdenta