Hugur og hönd  | In two minds … or more

Þus og þref: Í fyrsta sinn sem ég lenti í viðtali um gervigreindina fannst mér það fyrirbrigði heldur óspennandi og léttvægt. Takið djöfluls draslið úr sambandi! – var mitt svar. Nú er látið í veðri vaka að búið sé að skapa eilífðarvélar sem séu óviðráðanlegar. Hingað til hefur þurft orku til að láta bæði menn og vélar ganga. Og auðvelt að drepa allt með því að neita því um næringu: orku. Ef gervigreindarvélar geta sjálfar endurnýjað sig endalaust og orðið sér úti um ótakmarkaða orku, þá er þó sannarlega eitthvað merkilegt í gangi.

Hvað sem eilífðarvélum líður hljótum við að hafa val. Alveg sér í lagi á meðan gervigreindarmaskínurnar eru jafn uppfullar af drasli og þær eru. Hvaða verkefni viljum við að gervigreindin leysi?

Ég er ekki hrædd við tæknina eða jafnvel þá hugmynd að gervigreindin eyði mannkyninu, við virðumst vera fullfær um það, algerlega óháð gervigreind. Mannverurnar og hugmyndir þeirra eru hryllilegri en nokkur vél. Og þar sem við höfum skapað gervigreind í okkar mynd er mjög líklegt að gervigreindin tortími sjálfri sér, fyrr eða síðar.

Er gervigreindin tól? Aðallega ólíkindatól. Í eigu og umsjá risa tæknifávelda sem hafa engar hugsjónir nema gróðasjónarmið. Gervigreindin hefur enn ekki komið með lausnir á vanda heimsins – þvert á móti eykur hún á vanda heims með nýjum stríðstólum og brjálæðislegri orkuþörf – en henni er otað að öllu og öllum eins og svör og lausnir hennar séu heilagur sannleikur. Og það sem á að heilla mest: hún á að spara tíma = peninga. Hingað til hafa samsvarandi loforð ekki fært okkur neinn gæðatíma eða græna skóga.

Tíminn er sannarlega dýrmætur. Það er til dæmis dásamlegt að geta eytt honum í að hugsa, pæla, læra, skoða, skapa, – rækta huga og hönd. Mér er fyrirmunað að skilja þá sem vilja fara á vit vélanna í leit að hugmyndum, listum, sköpun. Til hvers er þá lifað? Ferlið er það sem skiptir máli, ferlið er lífið, ekki afraksturinn.

Það sem er óþolandi við fyrirbrigðið gervigreind er nákvæmlega allt þetta gervi, þetta plat og þessir prettir, þetta billega sníkjudýralíf sem við reynum að kenna við greind en framleiðir ekki annað en ómerkilega eftiröpun og hrærigraut, einhverja ælu af öllu sem það hefur slokrað í sig. Gervigreindarsköpunin byggir á illa fengnu efni, hreinlega stolnum gögnum: textum, myndum, tónlist, hugmyndum. Viti annarra. Ég er ekki á móti leitarvélum, reiknivélum, máltæknivélum, söfnun raunverulegra heimilda og tilvitnana í þær, svo lengi sem höfunda og heimilda er getið.

Ég hef frá því um 2012 pjakkað inn myndir og texta á þessa heimasíðu, einkum til að kynna verkin mín. Mín hefur verið ánægjan. En nú kemur umferð um síðuna aðallega frá tveimur löndum: BNA og Kína. Stórveldum gervigreindarinnar. Ég geri ráð fyrir að allt efni síðunnar sé nú að finna í gervigreindarbönkum hér og þar, til notkunar við tilbúning á gervigreindarmyndum og textum. Reglubundið fæ ég svo skjallpósta frá uppdiktuðum persónum sem vinna fyrir merkar umboðsskrifstofur og elska öll mín verk og vilja allt fyrir mig gera. Stundum er skrifað á ágætri gervigreindaríslensku. Ég hef líka fengið tilboð um að gefa „lestrarklúbbum“ tækifæri á því að kjósa bækur mínar hærra upp á listum Goodreads! Það á ugglaust ekki að kosta mikið, gervigreindarbottar eru svo hraðlæsir. Allt þetta leiðindabögg hefur gervigreindin aðstoðað svikahrappana við.

Það vefst fyrir mörgum að viðurkenna gervigreindarnotkun, en það væri þó ekki nema sjálfsagt að þess sé krafist að skýrt komi fram hvort gervigreind hafi verið notuð við sköpun og tilurð verka. Í bili ætla ég því að láta nægja að merkja mig því sem ég get staðið við: Ég nota ekki gervigreind til að skapa frummyndir eða frumtexta. Allar mínar bækur hef ég unnið frá grunni. Myndlýsingar eru handgerðar. Orðin mín. En um leið og ég sleppi þeim út í heiminn hefur þeim sjálfsagt verið stolið …


*Hér á eftir fer þýðing sem var gerð með aðstoð frá vélþýðingarþjónustu Google.
*The translation below was made with help from Google Translate.


Growl and grumble: The first time I was asked about my view on artificial intelligence, I found the whole phenomenon rather uninteresting and trivial. Just unplug the bloody thing! – that was my response. Now, it is being suggested that some kind of everlasting machines and networks that are simply beyond our control have been created. Up until now, energy has been required to keep both humans and machines running. And it is easy to shut everything down by denying it sustenance: energy. If AI machines can endlessly regenerate themselves and secure an unlimited supply of energy, then something truly remarkable is indeed afoot.

Regardless of the status of the AI machines (or software), we surely must have a choice — especially while they remain as full of rubbish as they currently are. What tasks do we actually want artificial intelligence to solve?

I am not afraid of the technology, nor even of the idea that AI might wipe out humanity; we seem perfectly capable of doing that ourselves, quite independently of artificial intelligence. Human beings and their ideas are far more horrific than any machine. And since we have created AI in our own image, it is highly likely that AI will eventually destroy itself — sooner or later.

Is artificial intelligence a tool? It is, above all, a rather unpredictable contraption. It is owned and managed by giant technogarchies that harbor no ideals beyond the pursuit of profit. Artificial intelligence has yet to offer solutions to the world’s problems — on the contrary, it inflames our problems through the arms industry and an insatiable, reckless demand for energy — yet it is thrust upon everyone and everything as if its answers and solutions were the holy truth. And the most alluring promise of all: that it saves time — which is to say, money. And the world needs more cheep things, doesn’t it?

Time is, indeed, precious. It is a wonderful thing, for instance, to be able to spend it thinking, reflecting, learning, exploring, and creating — to empower the mind and skills of the hand. I find it utterly incomprehensible that anyone would turn to machines in search of ideas, art, or creativity. What, then, is the point of living? The process IS the way of living, not the product.

What is truly intolerable about this phenomenon — artificial intelligence — is precisely its artificiality, its deceit, its trickery; this cheap, parasitic existence, which we dare to label “intelligence” even though it produces nothing but banal imitation and a muddled hodgepodge — a regurgitated mess of everything it has gorged itself upon. AI-generated content is built on ill-gotten material — on data that has been, quite simply, stolen: texts, images, music, ideas. The fruits of other people’s intellect. I am not opposed to search engines, calculators, language technology tools, the collection of actual sources, and the citation of those sources, provided that the authors and sources are acknowledged.

Since around 2012, I have been uploading images and text to this website, primarily to showcase my work. It has been a pleasure. However, traffic to the site now comes predominantly from two countries: the USA and China — the superpowers of artificial intelligence. I assume that ALL the content on this site now resides within various AI databases, used to generate AI-created images and texts. Furthermore, I regularly receive flattering emails from fictitious individuals claiming to represent prominent agencies — people who supposedly “love” all my work and want to do everything for me. Sometimes, these messages are even written in passable, AI-generated Icelandic. I have also received offers to help “book clubs” boost the rankings of my books on Goodreads — probably for a relatively small fee, since AI bots are such rapid readers. Artificial intelligence has made it incredibly easy for these scammers to carry out this tiresome nuisance.

Many find it difficult to admit the use artificial intelligence, yet it is only reasonable to demand clear disclosure regarding whether AI was used in the creation and development of a work. For now, therefore, I will simply state what I can stand by: I do not use artificial intelligence to create my artwork. The illustrations are hand-crafted. The words are my own. My photos are real. But the moment I release them into the world, they have, in all likelihood, been stolen …

 


Myndlýsingin hér ofar eru úr myndabókinni um Raunamædda risann sem kom fyrst út hjá Máli og menningu árið 1995 en var endurútgefin nú haustið 2026. Myndstef styrkti endurútgáfuna. Hér á þessar síðu 🔗 má svo finna ítarefni um bókina: nánari upplýsingar og hugmyndir sem kunna að nýtast í leik og starfi með börnum.

The image above is from my picturebook The Glum Giant (Raunamæddi risinn) that has just been republished. It was originally published by Mál og menning in 1995 and is now finally available again.

LINKS:
English translation available via
RLA Forlagid Rights Agency
– Contact RLA here.

Raunamæddi risinn í vefverslunum | Raunamæddi risinn in online bookshops:
Forlagið vefverslun  |  Penninn Eymundsson  |  Bóksala stúdenta

Bókaslóðin | The Path of Books

Teikning á sunnudegi: Þegar ég átti leið í bókabúð um daginn og leit yfir borð og bekki með nýútkomnum bókum, þá leið mér ekki ólíkt því sem ég stæði frammi fyrir hlaðborði af girnilegum réttum. Bókabúðir geta haft þessi áhrif, en eins og við önnur hlaðborð, þá gildir að hrúga ekki of miklu á diskinn. Nema hvað, eitthvað var þarna með öðrum hætti en áður í bókabúðinni og ég gat ekki skilgreint það strax. Mér fannst bækurnar fallegri, meira aðlaðandi, gott ef þær ilmuðu ekki betur en venjulega. Samt voru bókakápurnar ósköp misjafnar þegar að var gáð og sumt á hlaðborðinu myndi fráleitt rata á minn disk. En eftir að hafa gluggað í óvenju margar bækur, handleikið fallegar kápur, kjamsað á góðum setningum og dáðst að góðum myndlýsingum og bókahönnun þá áttaði ég mig á því sem öðruvísi var: plastið, fjandans plastið var farið! Í það minnsta af megni nýju bókanna. Loksins. Og þó fyrr hefði verið. Óskiljanlegt hvað þessi óþarfi hefur liðist lengi á Íslandi. Megi plastpökkun bóka aldrei aftur þrífast!

Þetta vistspor í rétta átt er auðvitað bara partur af því sem útgefendur og höfundar og bókahönnuðir þurfa að taka til endurskoðunar. Höfundur nokkur hampaði nýrri bók og sagði mér frá atviki þar sem hann var atyrtur fyrir að gefa út bók á pappír – það væri úrelt og óvistvænt! Það var og. Myndlýsingin hér fyrir ofan er að fullu unnin stafrænt, þar kom pappír hvergi nærri, enginn litur var skolaður úr pensli. En það er ekki þar með sagt að myndin sé vistvæn, þvert á móti skilja raftæki og rafmagnsframleiðsla eftir sig stór vistspor, þó miklar framfarir séu í þeim efnum. Orðin sem ég skrifa á skjáinn, heimasíðan mín á netinu – allt kostar það orku sem er ekki endilega vistvæn. Þó pappír sparist með rafbókum og upplýsingaveitum, þá vex efnisflóðið stöðugt á netinu, með tilheyrandi vistspori. Í samanburði við prentað efni fyrri tíma er stafrænt efni hreint hamfaraflóð, og mikið af því er efni sem engum hefði til hugar komið að setja á prent.

Það virðist gilda nokkurt jafnvægi á útgáfu rafbóka og prentaðra bóka almennt, hvort tveggja hefur kosti og galla. Pappírinn og prentgripurinn hefur enn mikið aðdráttarafl og margvíslegar rannsóknir sýna mun á raflestri og lestri af pappír – pappírsbókinni í vil og gildir það ekki síst um barnabækur. En eftir því sem ég kemst næst er bókaprentun nær alfarið komin úr landi. Fjölmargar prentsmiðjur á Íslandi geta þó flaggað Svansmerkinu og ættu að vera góður kostur fyrir vistvæna útgáfu. Bókapappírinn er vonandi fenginn úr sjálfbærum skógum og framleiddur með ábyrgum hætti. Verða útgefendur, höfundar og neytendur ekki að gera sambærilegar kröfur til menningarefnis og til dæmis matvæla? Hnífurinn stendur þar auðvitað í kúnni því fæstir vilja borga hinn vistvæna brúsa þegar á reynir, hvað sem umræðunni líður. 

Kannski eru allir útgefendur að leggja drög að vistvænni framleiðslu og ég vona að það megi sjá þessi merki og vottun sem víðast. Nú þegar jólabókaflóðið nálgast má gleðjast yfir góðum bókum, en kannski eru metsölutölur ekki það sem metast á um í framtíðinni – heldur hefja til vegs gæði, aukna samfélagsábyrgð og sjálfbæra, vistvæna framleiðslu. Það má láta sig dreyma. Allt sem við nýtum og notum verðum við að geta skilað aftur til jarðar. Bækur þurfa að vera þannig úr garði gerðar að við mættum í raun skilja þær eftir í skóginum – án þess að skaði hljótist af. Þá getum við virkilega notið þeirrar góðu iðju, að gleyma okkur við lestur bóka sem hjálpa okkur að rata um heiminn og heim. 

Sunday illustration: I made this illustration as I pondered over the ecological footprint of books. (This is the very short version of the text above). It is hard to get the facts straight about e-books vs printed books, obviously both use resources and energy. As does this blog, and the digital illustration above. As I see it, it’s not the question of choosing one over the other, but rather to make both kinds as eco-friendly as possible. The printed children’s book still wins over the e-book according to most research concerning engagement, comprehension, vocabulary development, etc. I like the digital media, but I love the paper book, the book as an object. When it comes to printed books we should in theory be able leave the books in the woods, or give them back to nature after their hopefully long life helping us to find our way in world.

Bókaslóðin | The Path of Books – mynd | Illustration: © Áslaug Jónsdóttir 2019