
Bókatíðindi: Myndabókin Sjáðu! hefur verið seld til Svíþjóðar og er nú komin í kynningu í bókaskrá ársins hjá útgefandanum Argasso. Þýðandinn er sá listagóði málamaður John Swedenmark, sem hefur þýtt ógrynni íslenskra bóka yfir á sænsku og hlotið lof fyrir. Sænska Titta! kemur út í september.
Book news: I am happy to announce that my picture book Look! has been sold to Sweden. Above is the introduction in this years book catalogue by the publishing house in Sweden, Argasso. The translator is the amazing linguist John Swedenmark, who has translated countless Icelandic books into Swedish. Swedish Titta! will be released in September.
Sjáðu! Viðurkenningar og bókadómar | LOOK! – Honours and reviews

VIÐURKENNINGAR:
♦ Útnefning á HEIÐURSLISTA IBBY 2022 fyrir myndlýsingar
♦ Tilnefning til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2021. Umsögn dómnefndar: „Sjáðu! er rímað myndavers þar sem tvö brosmild börn leiða yngstu lesendurna í ferð um borg og sveit, um heima og geima. Á hverri opnu birtist ný veröld þar sem ægir saman spennandi dýrum, þjóðsagnaverum og ævintýrapersónum. Orðaleikir og litríkar myndirnar kalla á spurningar og vangaveltur um allt sem fyrir augu ber; önd með hatt, ástfangna skessu, glaðar ruslatunnur og brosmildar kýr. Myndir Áslaugar eru ævintýralegar og fullar af lífi og kallast skemmtilega á við kveðinn textann svo úr verður fjörugur leikur fyrir börn og fullorðna saman.“
♦ Tilnefning til Fjöruverðlaunanna 2021 – frétt og umsögn dómnefndar á vef.
BÓKADÓMAR:
♦ „Harðspjalda gullmoli“ ★★★★★ – Lestrarklefinn.
♦ „Sjáðu eftir Áslaugu Jónsdóttur er líklega ein af betri barnabókum sem ég hef lesið. […] Myndskreytingarnar í þessari bók eru yndislegar, það er margt um að vera á blaðsíðunum en ekki þannig að það sé yfirþyrmandi. En mér finnst oft verða mikill glundroði í mörgum ungbarnabókum, eitthvað sem ég er lítt hrifin af. En hérna tekst Áslaugu mjög vel til að hafa jafnvægi á síðunum og í sögunni. Tvö börn kanna heiminn í kringum sig og sjá hina ýmsu hluti á leið sinni. Það er ótrúlega skemmtilegt að benda á ýmsar kynjaverur og tala um þær eða biðja barnið um að finna hluti á blaðsíðunum. Textinn er líka skemmtilegur í vísnaformi. Þetta er bók sem getur alveg klárlega vaxið með barninu.“ – Díana Sjöfn, Lestrarklefinn, 2022.
♦ „Myndirnar er fullar af leik og ímyndunaraflinu gefinn laus taumurinn, þær vekja undrun og áhuga og barnið sem hlustar getur leitað að hlutunum sem nefndir eru í þulunum og tekið þannig virkan þátt í lestrinum. Tónninn í textanum er léttur og glaðlegur, og hann er auk þess einstaklega fallegur.“ – Bókmenntavefurinn.
HONOURS:
♦ Selected for the IBBY HONOUR LIST 2022 for illustration.
♦ Nomination for The Reykjavík Children’s Book Awards 2021.
♦ Nominated to Fjöruverðlaunin, the Icelandic Women’s Literature Prize 2021. Fjöruverðlaunin – judges review.
BOOK REVIEWS:
♦ „A gold nugget of a board book.“ ★★★★★ – Lestrarklefinn.
♦ “Sjáðu! (LOOK!) by Áslaug Jónsdóttir is probably one of the best children’s books I have read. […] The illustrations are wonderful, there is a lot going on on the pages but nowhere overwhelming. I often find that there is too much of a chaos in many infant books, something I do not like. But here Áslaug succeeds very well in balancing the pages and the story. Two children explore the world around them and see all sorts of things on their way. It is fun to point out various odd creatures and animals and talk about them or ask the child to find things and objects on the pages. The rhymed text is also entertaining. This is a book that can clearly grow with the child.” – Díana Sjöfn, Lestrarklefinn, 2022.
♦ “The pictures are full of play and the imagination is unleashed, they arouse wonder and interest and the child who listens can look for the things mentioned in the rhymes and thus take an active part in the reading. […] The tone of the text is light and cheerful, and it is also beautiful.” – The Icelandic Literature Web.
LINKS: Information in English – LOOK! – RLA Forlagid Rights Agency.
Sjáðu! í vefverslunum | Sjáðu! in online bookshops:
Forlagið vefverslun | Penninn Eymundsson | Bóksala stúdenta