Ísing | All ice …

Hrímaðar föstudagsmyndir: Það er fallegt en kalt á landinu bláa þessar vikurnar. Og kuldinn kemur víða að. Heimsfréttirnar vekja ugg og fáránlega neikvæð hugrenningatengsl við ís. „Þetta er nú bara klakastykki,“ sagði ófétið um Grænland. Og hryllingurinn sem ICE-liðar stunda ætti að vera okkur öllum viðvörun: það sama getur gerst alls staðar. Ekkert samfélag er ónæmt. Smithættan frá öfgahreyfingum eins og MAGA er hættulegri en nokkur pest.

Vonandi verða prjónaðar og bornar á höfði margar rauðar húfur í þessu frosti sem leggst að okkur.
Það er líka ískalt á Gazasvæðinu í gervi-vopnahléinu sem þar er. Hér er hægt að styrkja börn á Gaza.
Myndirnar eru svo í boði náttúrunnar, gjörið svo vel.

Frosty Friday Photos: It’s beautiful but cold outside these weeks. On top of that there are so many chilling world news with all too negative associations with ice. “It’s just a piece of ice,” said the morbid president of the United States about our neighbour Greenland. And the horror and the crimes committed by the ICE-thugs in the US should be a warning to us all: the same thing can happen anywhere. No society is immune. The danger of transmission and contagion from MAGA and similar movements is more dangerous than any virus.

Hopefully many red hats will be knitted and worn in this frost that is approaching us.
Images courtesy of nature, enjoy.

Ljósmyndir teknar | Photo dates: 03.-31.01.2026

Gleðilegt ár! | Happy New Year 2022

 

Áramót – 2021 kvatt: Iðulega hef ég ætlað mér að skrifa einhverskonar annál í lok árs en það hefur ekki tekist hingað til, kannski sem betur fer. Það væri kvöl að velja hápunkta ársins, afrekin ekki önnur en að sinna vinnu á ýmsum vígstöðvum – og sem ég nýt í botn – en ég myndi gleyma að nefna mann og annan, konu og kvár, ég myndi gleyma og svo muna seinna… Til upprifjunar hefði ég ekki aðra dagbók en mislanga og mis-smásmugulega minnislista sem ég skrifa: fulla ef endurtekningum og hvunndagsgjörningum. Hvað ætli annars sitji eftir í minninu? Tæplega hvað var í matinn eða hverjum ég sendi vinnuskeyti… Eru það mikilsverðir áfangar, gleðin og góðu stundirnar eða kannski ógleymanleg leiðindi? (Árið 2021 hefur nú aldeilis átt sína spretti þar). Hvað er þess virði að halda á lofti? Yfirleitt sjáum við ekki það sem máli skiptir fyrr en löngu seinna, breytingarnar sem skipta sköpum, vendipunktana sem fleyta okkur áfram inn í framtíðina. 

Sennilega eru ljósmyndirnar mínar skástu dagbækur. Þær eru þó af ýmsum toga: iðulega eru myndefnin sérvalin og sjónarhornið sömuleiðis og þannig verða myndirnar á sína vísu óáreiðanlegar heimildir og valin minning. Ég læt því vera að draga árið saman í myndum – en birti sem áramótakveðju myndir frá heimsókn á Þingvelli í lok desember. Og sjá og sjá: gull okkar og gimsteina! Þetta var altént einn af góðu dögum ársins, hvernig sem á það var litið. Gott veður, góður félagsskapur, nesti og næði, logn og blíða. Sólin reis einhverjar þrjár gráður eða svo upp á himininn og skein yfir hrímaða vellina. Það var fegurðin ein. 

Gleðilegt ár kæru lesendur, gleðilegt ár allir vinir og samstarfsfólk. Ég þakka öllum þeim sem ég hef átt góð og gagnleg samskipti við á árinu, góðum vinum nær og fjær, sem hefur verið ómetanlegt að hitta rafrænt sem og í raunheimum. Ég óska ykkur gæfu á árinu 2022. Hittumst heil!

 

Farewell 2021!  Happy New Year 2022 to all! Happy New Year dear friends and co-workers: I thank you for inspiration and friendship through out the year. I wish you good luck in the year 2022 and I hope we all can make good changes come true. See you soon!

 

The photos: Þingvellir, Öxarárfoss, ice crystals in a field of grass at Þingvellir National Park. 

Ljósmynd dags. |  Photo date: 27.12.2021