Verðlaunaskrímsli | The Icelandic Literary Prize 2017

Íslensku bókmenntaverðlaunin 2017:
Þriðjudaginn 30. janúar voru Íslensku bókmenntaverðlaunin veitt við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Heiðurs aðnjótandi að þessu sinni voru: Unnur Þóra Jökulsdóttir fyrir Undur Mývatns: – um fugla, flugur, fiska og fólk, í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Kristín Eiríksdóttir fyrir Elín, ýmislegt, í flokki fagurbókmennta og Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler fyrir Skrímsli í vanda, í flokki barna- og ungmennabóka. Við skrímslahöfundar erum auðvitað himinlifandi og þakklát!

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989. Árið 2013 var í fyrsta sinn tilnefnt í flokki barna- og unglingabóka. Skrímsli í vanda er fyrsta myndabókin sem hlýtur verðlaunin. Í umsögn dómnefndar sagði:

„Skrímsli í vanda eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal er litríkt og fallegt verk sem tekur á viðfangsefni sem snertir okkur inn að kviku; marglaga saga fyrir alla aldurshópa, sem sómir sér vel í hinum glæsilega skrímslabókaflokki.“

Hér neðar á síðunni eru tenglar á fréttir um verðlaunin og neðst má lesa ræðustúfinn sem ég flutti af tilefninu.

Winners of the Icelandic Literary Prize 2017:
The Icelandic Literary Prize was presented on 30 January 2018 by President Guðni Th. Jóhannesson. The event took place at Bessastaðir, the presidential residence. Unnur Þóra Jökulsdóttir received the award for her book Undur Mývatns (The Wonder of Mývatn), in the category of non-fiction. Kristín Eiríksdóttir received the award for her novel Elín, ýmislegt (Misc.), in the category of fiction. Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal and Kalle Güettler received the award for the book Skrímsli í vanda (Monsters in Trouble) in the category of children and young adult’s fiction.

This is a great honor for us authors and we are sincerely happy and grateful! The Icelandic Literary Prize was founded in 1989 and the category for children’s books was added in 2013. Skrímsli í vanda is the first picturebook to receive this prize. The jury’s motivation reads as follows:

“Monsters in Trouble by Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler and Rakel Helmsdal is a colorful and beautiful work that deals with subjects that touch us all deeply; a multilayered story for all ages, and an impressive addition to the Monster Series.”

Further below are links to news sites and articles, and at the bottom is my speech (in Icelandic) given at the prize celebration.

Áslaug Jónsdóttir (author and illustrator), Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir (editor at Forlagið), Kalle Güettler (author).


FRÉTTATENGLAR  |  NEWS LINKS:

• Rithöfundarnir Áslaug Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Unnur Jökulsdóttir eru handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2017 – RÚV – (The Icelandic National Broadcasting Service) – ruv.is
• RÚV – Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent [myndband | video] ruv.is
• RÚV – Þakkarræða Áslaugar Jónsdóttur [myndband | video] ruv.is
• Handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2017 – Miðstöð íslenskra bókmennta – Islit.is
• Íslensku bókmenntaverðlaunin – Forseti.is
• Konur hrepptu Íslensku bókmenntaverðlaunin – Skáld.is
• Afhending Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2017 – Félag íslenskra bókaútgefenda – fibut.is 
• Íslensku bókmenntaverðlaunin – Reykjavík bókmenntaborg Unesco – bokmenntaborgin.is
• Áslaug, Kristín og Unnur handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna – Vísir – visir.is
• Kristín, Unnur og Áslaug hljóta íslensku bókmenntaverðlaunin – DV – dv.is 
• Íslensku bókmenntaverðlaunin – Rithöfundasamband Íslands – rsi.is
• Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin 2017 í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bókina Skrímsli í vanda – IBBY – ibby.is 
• Mývatn, Elín og skrímsli best – Morgunblaðið – mbl.is 

• Úr grein Silju Bjarkar Huldudóttur í Morgunblaðinu 31. janúar 2018: Viðtal við Áslaug Jónsdóttur (pdf).

IN ENGLISH
• The Icelandic Literary Prize 2017 presented by President Guðni Th. Jóhannesson – Icelandic Literature Center
• Icelandic Literary Award Winners 2017 – Iceland Review – icelandreview.com
• Icelandic Literary Prize awarded – The Iceland Monitor – icelandmonitor.mbl.is
• The Icelandic Literary Prize for 2017 – Reykjavík UNESCO City of Literature – bokmenntaborgin.is

IN SWEDISH: 
• Norrteljetidning – norrteljetidning.se
• Kalle Güettler hemsida – 30. jan + 31. jan
• Bokförlaget OPAL – Vinnare av Islands litteraturpris!

IN FAROESE:
• Rakel Helmsdal – Tíðindi


Forseti Íslands, ágætu gestir og áheyrendur;

Fyrir hönd okkar bókarhöfunda vil ég þakka hjartanlega fyrir þessa góðu viðurkenningu. Rakel Helmsdal átti því miður ekki heimangengt en biður fyrir góðar kveðjur og þökk.

Það er mér sérstök ánægja að standa hér, ekki einasta í hlutverki rithöfundarins, heldur líka sem myndhöfundur og bókateiknari. Ég veit að við unnum öll íslenskri tungu og viljum veg hennar sem mestan. En í baráttunni fyrir tungu og texta má ekki gleyma máli myndanna. Áhrifum þeirra getur verið erfitt að koma í orð, því þær höfða beint til tilfinninganna og oft er sjón sögu ríkari.

Í einni bóka Vilborgar Davíðsdóttur um Auði Djúpúðgu er eftirminnileg lýsing á aðförum norrænna manna í víkingi: þeir köstuðu á bál fagurlega myndlýstum ritum kristinna munka, en hirtu góðmálma og eðalsteina af spjöldum og bókarspennslum. Mér er nær að halda að bókaböðlar af þessu tagi eigi kannski nokkra afkomendur, ef marka má verðmætamatið og hve lítill greinarmunur virðist stundum gerður á því sem vel er unnið og lakar.

Sláum ekki slöku við þegar kemur að myndlýsingum og útliti bóka. Eflum myndlæsi og gerum alvöru úr því að hvetja íslenska bókateiknara til dáða. Til þess þurfa þeir meira en orðin tóm.

Á stundum hljómar misskilin umhyggja fyrir barnamenningu eins og hún sé þjálfun og undirbúningur fyrir æðri listir: fyrir „alvöru“ leikhús, „alvöru“ bókmenntir. Allt léttvægar æfingar fyrir börn og jafnframt fremjendur listarinnar – en hafi ekki raunverulegt listrænt gildi í sjálfu sér, sé ekki fullburða listsköpun því þeir sem njóta eru „bara“ börn.

Það má vel vera að starf okkar barnabókahöfunda stuðli að því að skaffa lesendur og áheyrendur framtíðar, læsa þegna í sífellt flóknara samfélagi, en við skrifum og myndlýsum vegna ástar okkar á þessari listgrein: bókum fyrir börn. Það eru listirnar sem gera okkur mennsk og öll menntun er til lítils ef þar skortir listina. Það sem mestu máli skiptir er ekki að sjá nafnið sitt á bókarkápu, jafnvel ekki það að fá stórkostlegar viðurkenningar eins og þessa, heldur sú nautn að hafa fengið að dvelja um hríð í heimi mynda, orða og sagna – og svo vonandi ná að opna þann heim fyrir fleirum.

Og heimur sagnanna er svo óendanlega fjölbreyttur. Ég er svo heppin að hafa eignast þar góða vini sem hafa fylgt mér í tæp sautján ár. Þessir vinir mínir eru loðnir og dálítið ljótir … Litla skrímslinu og stóra skrímslinu fylgdu ekki síðri vinir: meðhöfundar mínir Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. Með þeim hef ég átt frjótt og einstakt samstarf með líflegum samræðum um hugmyndir, tungumál, tilfinningar og gildi. Við þekkjum skrímslin gerla og vera má að titrandi hjörtu, tannhvöss og hávær skrímsli eigi sér fyrirmyndir í samvinnu okkar. En það gildir líka um vináttuna og samhygðina.

Öll stjórnumst við af margvíslegum tilfinningum – jafnvel þegar við höldum að vitsmunirnir ráði. Að geta sett sig í spor annarra er öllum lífsnauðsyn því enginn er hólpinn fyrir óvæntum spuna örlaganna. Að skoða tilfinningar sínar – jafnvel í gegnum loðinn ham skapheitra skrímsla – getur kannski hjálpað stórum og smáum lesendum til að vega og meta mikilvægustu tilfinningar mennskunnar: samlíðun og réttlætiskennd. Við þurfum á því að halda, nú sem aldrei fyrr.

Ég vil að lokum þakka dómnefndinni fyrir að treysta okkur skrímslunum fyrir heiðrinum. Útgefendum okkar á Forlaginu og ritstjóra, Sigþrúði Gunnarsdóttur, þökkum við ljúft samstarf; – kærar þakkir.

Ljósmyndir | Photos: Valgerður B / Forlagið 30.01.2018

Monster i knipa | Book release in Sweden!

Skrímsli í vanda – á sænsku: Þá er komið að útgáfudegi í Svíþjóð á sænsku útgáfunni af Skrímsli í vanda. Þar sér annar meðhöfunda minna, Kalle Güettler, um að kynna nýju bókina: Monster i knipa sem kemur út hjá bókaútgáfunni Opal. Um útgáfuboðið má lesa hér á heimasíðu Kalle, en það fer fram n.k. laugardag, 27. janúar kl. 13, í Bokslukaren við Maríutorg í Stokkhólmi. Bókin um skrímslin þrjú í vanda verður þá komin út á frumtungumálunum þremur: íslensku, færeysku og sænsku.

Monsters in Trouble – in Sweden: The Swedish version of Skrímsli í vanda (Monsters in Trouble by Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal and Kalle Güettler) is soon to be released. My co-author Kalle Güettler will introduce the new book: Monster i knipa, published by Opal, on Saturday 27 January at 1 pm at Bokslukaren, Mariatorget 2, in Stockholm. Read more about the event on Kalle’s website here or the book store’s homepage: here – in Swedish.

To read more about the Monster series click here.
For illustrations from the books and quotes from reviews: click here.
For foreign rights contact Forlagid Rights Agency.

Með samkennd að leiðarljósi | Another four star review!

Bókadómur: Á Þorláksmessu, 23. desember, birtist bókadómur um Skrímsli í vanda í Morgunblaðinu. Silja Björk Huldudóttir útdeildi fjórum stjörnum og sagði meðal annars:
„Sem fyrr bera stílhreinar, litsterkar og tjáningarríkar myndir Áslaugar söguna áfram og sumt það mikilvægasta er ekki sagt berum orðum, sem er snjallt.
…
Margir deila vafalítið þörf skrímslanna til að láta gott af sér leiða og komast, líkt og skrímslin, að því að ef allir leggja sitt lóð á vogarskálarnar er ekkert óyfirstíganlegt. Með samkenndina að leiðarljósi verður heimurinn að betri stað og það eru mikilvæg skilaboð til ungra lesenda.“

Book review: On 23. December there was a fine book review in Morgunblaðið newspaper for Skrímsli í vanda – Monsters in trouble. Critic Silja Björk Huldudóttir decorated the review with four stars and wrote:

“As before, the story is carried on by Áslaug’s colorful, clear-cut style and expressive illustrations, and some of the most important things are not written out plainly, which is clever.
…
There is no doubt that many share the two monster’s need to do good and find, like the monsters, that if everyone pulls their weight, nothing is unachievable. Guided by sympathy and solidarity, the world becomes a better place and that is an important message for young readers.”

Skrímslin á rússnesku | Little Monster and Big Monster go to Russia!

Skrímslin til Rússlands: Þau tíðindi eru nú að kvisast út að litla og stóra skrímslið séu á leið til Rússlands. Það er útgáfufyrirtækið Meshcheryakov Publishing House, sem í nóvember tryggði sér réttinn á þremur bókum um litla skrímslið og stóra skrímslið: Nei! sagði litla skrímslið, Stór skrímsli gráta ekki og Skrímsli í myrkrinu. Fyrir nokkrum árum höfðu sömu útgefendur sýnt bókunum áhuga á Bologna bókastefnunni, en talsverð gleði virðist ríkja um samninginn við Forlagið og höfundana. Tíðindi á rússnesku má lesa hér og hér og á FBsíðu útgáfunnar hér.

Bækurnar um litla skrímslið og stóra skrímslið eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler eru nú orðnar níu talsins. Þær hafa allar verið gefnar út í heimalöndum höfundanna: Íslandi, Færeyjum og Svíþjóð, en auk þess hafa sögurnar verið þýddar á fjölda tungumála: finnsku, norsku og nýnorsku, dönsku, frönsku, spænsku, kínversku, litháísku, basknesku, katalónsku, kastilísku, galisísku, tékknesku, lettnesku og arabísku – og nú innan tíðar eru titlar úr bókaflokknum væntanlegir á lettnesku og rússnesku.

Bækurnar um skrímslin hafa hlotið ýmsar viðurkenningar:
★ Skrímsli í vanda: Tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2017 sem besta barna- og ungmennabókin.
★ Skrímslakisi: Valin á Heiðurslista IBBY 2016 fyrir myndlýsingar.
★ Skrímslakisi: Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana, 3.-4. sæti í flokki íslenskra barnabóka 2014.
★ Skrímslaerjur: Valin til upplestrar á Norrænu bókasafnsvikunni 2014.
★ Skrímslaerjur: Tilnefning til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013.
★ Skrímslakisi:  Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana, 3. sæti í flokki íslenskra barnabóka 2014.
★ Stór skrímsli gráta ekki: Tilnefning til Le prix des Incorruptibles 2012 – Bókaverðlaun barna og unglinga í Frakklandi.
Úrslit: 3. sæti í flokki bóka fyrir yngstu lesendurnar (maternelle).
★ Skrímsli á toppnum: Bokjuryen 2010 – Bókaverðlaun barna og unglinga í Svíþjóð. 3. sæti í flokki myndabóka 0+.
★ Skrímsli á toppnum: Tilnefning til Fjöruverðlaunanna 2011.
★ Skrímslapest: Bokjuryen 2008 – Bókaverðlaun barna og unglinga í Svíþjóð. 2. sæti í flokki myndabóka 0+.
★ Stór skrímsli gráta ekki: Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur 2007.
★ Nei! sagði litla skrímslið: Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana, „Besta barnabókin 2004“.
★ Nei! sagði litla skrímslið: Dimmalimm – Íslensku myndskreytiverðlaunin 2004.

Smellið hér til að sjá myndir úr bókunum og lesa brot úr bókadómum og lesið meira um samstarf höfundanna hér.


Little Monster and Big Monster in Russian: The publishing rights to three books from the monsterseries have been sold to Meshcheryakov Publishing House in Russia. See news in Russian here and here and at Meshcheryakov’s FB-page here.

There are now a total of nine picture books about the Little Monster and the Big Monster by the collaborative authorship of Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal and Kalle Güettler. They have all been published in the authors’ home countries: Iceland, Faroe Islands and Sweden, but have furthermore been translated into Finnish, Norwegian and Neo-Norwegian, Danish, French, Spanish, Chinese, Lithuanian, Basque, Catalan, Castilian, Galician, Czech and Arabic, and titles now soon to be available in Latvian and Russian. See also illustrations from the books and quotes from reviews here. Read more about the series and the authors here. For foreign rights contact Forlagid Rights Agency.

The books about Little Monster and Big Monster have received several awards and honors:
★
 Skrímsli í vanda (Monsters in Trouble): Nomination to The Icelandic Literature Prize 2017 – best children’s / YA book. 
★  Skrímslakisi
 (Monster Kitty): Selected for IBBY Honour List 2016 for illustrations in
★ Skrímslakisi (Monster Kitty): The Bookseller’s Prize, Iceland: 3.-4. place on the list of The best Icelandic Children’s Books 2014.
★ Skrímslaerjur 
(Monster Squabbles): Selected for the Nordic Literary Week 2014: 
★ Skrímslaerjur 
(Monster Squabbles): Nomination to Nordic Council’s Children and Young People’s Literature Prize 2013.
★ Skrímslaerjur (Monster Squabbles):The Bookseller’s Prize, Iceland: 3. place on the list of The best Icelandic Children’s Books 2013.
★ Un grand Monstre ne pleure pas (Big Monsters Don’t Cry): Shortlisted for Le prix des Incorruptibles 2012 – Children’s Book Jury, France: In final: 3rd prize in selection of books for the youngest readers (maternelle).
★ Monster i höjden (Monster at the Top): Bokjuryen 2010 – Children’s Book Jury, Sweden. 3rd prize in the category: picturebooks 0+.
★ Skrímsli á toppnum (Monster at the Top): Nomination to Fjöruverðlaunin 2011– Women’s Literature Prize, Iceland.
★ Monsterpest (Monster Flue): Bokjuryen 2008 – Children’s Book Jury, Sweden. 2nd prize in the category: picture books 0+.
★ Stór skrímsli gráta ekki (Big Monsters Don’t Cry): Reykjavík Children’s Literature Prize 2007.
★ Nei! sagði litla skrímslið (No! Said the Little Monster): The Bookseller’s Prize, Iceland: „Best Icelandic Children’s Book 2004“.
★ Nei! sagði litla skrímslið (No! Said the Little Monster): Dimmalimm – The Icelandic Illustrators’ Award 2004.

Fyndin og sorgleg í senn | Four star review!

Bókadómur: Í Fréttablaðinu í dag, föstudaginn 27. október, birtist ljómandi góður bókadómur um Skrímsli í vanda. Helga Birgisdóttir fjallar um texta, myndir, umbrot og hönnun og segir í niðurstöðu:
„Dásamleg viðbót við frábæran bókaflokk, fyndin og sorgleg í senn með skírskotun til vandamála sem heimurinn allur glímir við og þarf að leysa“.

Book review: Fréttablaðið newspaper brought a fine book review for Skrímsli í vanda – Monsters in trouble – this morning. Critic Helga Birgisdóttir writes about text, illustrations, layout and design and concludes:
“A wonderful addition to a great book series, funny and sad at the same time, with reference to problems the whole world is dealing with and needs to solve.”

 

Ég vil fisk! – á ýmsum tungum | I Want Fish! – in the sea of languages

Myndabókin Ég vil fisk! (أريد_سمكة) kemur út á allra næstu dögunum í arabískri þýðingu hjá útgáfufyrirtækinu Al Fulk í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Áður hefur bókin komið út í þýðingum á sænsku, færeysku, grænlensku og dönsku. Bókadóma og fleira um Ég vil fisk! má lesa hér.

Book release! My picture book I Want Fish! (أريد_سمكة) has been published in Arabic and will be launched at the Sharjah International Book Fair next month. The publisher is Al Fulk, based in Abu Dhabi in the United Arab Emirates. The book has already been published in Swedish, Danish, Faroese and Greenlandic. Reviews and more about I Want Fish! here.


Þýðing á spænsku
A Spanish translation: no easy task!

Áhugasamir þýðendur hafa einnig snarað Ég vil fisk! á ensku, frönsku og spænsku, svo útgefendur megi glöggva sig á efni bókarinnar. Þar má nefna að Lawrence Schimel, rithöfundur, þýðandi og útgefendi, hefur þýtt bókina á spænsku. Í viðtali á inkygirl.com segir Lawrence frá ýmsum vandkvæðum og vali sem þýðandi getur staðið frammi fyrir, jafnvel þó textinn sé stuttur eins og í Ég vil fisk!. Þá var einnig viðtal við Lawrence í mexíkanska dagblaðinu Milenio í lok nóvember á síðasta ári. Greininni „El chícharo y el pez“ fylgdu myndir úr bókinni.

Mar sabe lo que quiere! A wonderful Spanish translation is available of the book, done by the skillful translator, writer and publisher Lawrence Schimel. In this interview on inkygirl.com Lawrence discusses the problems to solve and choices to make when translating children’s books, among them I Want Fish! Lawrence was also interviewed for the Mexican newspaper Milenio last year. The article “El chícharo y el pez” (The Pea and the Fish) was illustrated with images from the book.


French and English translations are also available for publishers to review. For further information contact Forlagid Rights Agency.

Review in English:
„The frustration of a child whose parents refuse to understand what she wants is beautifully rendered. Colours, fonts, backgrounds, and especially the facile expressions all reinforce her emotions. Unnur is shown in all her glory and hardheadness, while the parents are only seen in bits and pieces. The contentment on Unnur’s face when she finally gets what she craves will warm the soul. – Ernst Bond, Bookbird Vol.46 2008


Skrímsli í vanda! | Monsters in Trouble!

Ný bók um skrímslin! Þá er hún komin úr prentun og út í búðirnar, nýja bókin um litla og stóra skrímslið eftir okkur norræna teymið: Áslaugu, Kalle og Rakel. Það ber nú helst til tíðinda að loðna skrímslið kemur á ný í heimsókn til litla skrímslisins. En það innlit er ekki vandalaust. Í kynningartexta á kápu segir:

„Æ, nei! Loðna skrímslið er aftur komið í heimsókn til litla skrímslisins. Stóra skrímslið vonar að það staldri stutt við. En það er nú eitthvað annað! Loðna skrímslið segist aldrei ætla heim til sín aftur!
Skrímsli í vanda er níunda bókin um litla og stóra skrímslið. Bækurnar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og hlotið margs konar verðlaun og viðurkenningar.“

Hér má lesa eitt og annað um samstarf okkar höfundanna og ennfremur kynna sér hinar bækurnar átta hér.

New book! It’s here! It’s out in the stores, our new book: Monsters in Trouble, – by yours truly and my co authors Kalle Güettler and Rakel Helmsdal. Furry Monster is back for a visit but this time it says it is never going home again! This must mean trouble!

Monsters in Trouble is the ninth book about Little Monster and Big Monster. Read more about the authors and our collaboration here and see samples from previous books in the series here.

Forlagið – vefverslun | Forlagid online shop. 

Skrímslabækurnar á Spáni | Book release in Spain

         

Tveir titlar í bókaflokknum um litla skrímslið og stóra skrímslið komu út á dögunum hjá Sushi Books á Spáni. Það eru Skrímsli í myrkrinu og Skrímslapest á tveimur tungumálum: spænsku (kastilísku) og galisísku. Sushi Books er barnbókaútgáfa forlagsins Rinoceronte sem hefur áður þýtt og gefið út fyrstu tvo titlana, Nei! sagði litla skrímslið og Stór skrímsli gráta ekki. Fyrstu tveir titlarnir komu út á fjórum tungumálum árið 2014: kastilísku, galisísku, katalónsku og basknesku. (Sjá neðar).

Með því að smella á bókakápurnar má lesa nokkrar síður úr bókunum. Meir um skrímslabækurnar má lesa hér.

Book release: Sushi Books in Spain have just launched two new titles in the Monster series in Spanish (Castilian) and Galician. Sushi Books is an imprint of the publisher Rinoceronte that have previously published the first two books in the series, No! Said Little Monster and Big Monsters Don’t Cry in the Castilian, Galician, Catalan and Basque languages (2014), see below.

You can click on the book covers to read a few pages from the books. To read more about the Monster series click here.

GAL_DI NON   CAT_DIU NO   EUS_EZ DIO   ES_DICE NO

GAL_Os_monstros_grandes_non   CAT_Els_monstres_grans   EUS_Munstro handiek   ES_Los_monstruos_grandes_no

Læsi og bókmenntir | Literacy and literature

Alþjóðadagur læsis er í dag, 8. september, en dagurinn er tileinkaður „læsi í stafrænum heimi“. Um það tilefni má lesa nánar á heimasíðu Unesco: International Literacy Day. Mikilvægi læsis verður vart ofmetið, það að skilja og greina texta, hvar sem hann birtist. Það sama gildir líka myndir og tákn, myndlæsi vegur ekki síður þungt í stafrænum heimi. Rétt eins og tungumál, þróast táknmál myndanna og litast af margvíslegri menningu og síkvikum heimi. Fátt þjálfar skilning betur en lestur bókmennta og því ekki hægt að gefa sér að litlu máli skipti hvað og hvernig lesið sé. Njótið því góðra bóka, mynda og texta! Gleðilegan dag læsis!

Reading: Today, September 8., is the International Literacy Day, celebrated under the theme: “Literacy in a digital world”. The importance of reading can not be overestimated, – to be able to understand and explore text – in what ever form. The same goes for images, pictures and symbols: visual literacy is also highly important in a digital world. But the matter matters, as well as „deep reading“ of both images and text. And we should read literature! So I wish you all the delights of literature and language, illustration and art! Happy Literacy Day!

Skrímslin af borðinu! | Monsters in the making

Verkalok: Það er undurgott að ljúka verkefni sem hefur tekið langan tíma, hreinsa til á teikniborðinu, ganga frá verkfærum og ekki síst huga að nýjum verkum! Í síðustu viku lauk ég við myndlýsingar fyrir næstu skrímslabók sem verður eins og fyrri bækur gefin út á þremur tungumálum, móðurmálum höfundanna: á íslensku hjá Forlaginu, á færeysku hjá Bókadeildinni í Færeyjum og á sænsku hjá forlaginu Opal í Stokkhólmi.

Eins og ævinlega á síðustu metrunum er ég samt hlessa yfir því hvað þetta hefur allt tekið langan tíma og er jafnframt sannfærð um að verkið sé í alla staði ómögulegt. Þá er kominn tími til að halda áfram – og gera betur næst!

Hérna neðst í póstinum er lítið myndband frá vinnuborðinu. Ég væri auðvitað alveg til í að geta unnið svona hratt …

Cleaning the desk: Last week I finished the illustrations for the next book in the Monster series. As the previous books this ninth book in the series will be published in three languages, the mother tongues of the authors: Icelandic (Forlagið), Faroese (BFL) and Swedish (Opal).

It’s satisfying to clean the desk and stow away sketches and papers – and get ready to finish the layout and files for printing. Yet, as always when I wrap up a project and face delivery, I also feel frustrated: Why took it so long? Is this it, is this all I came up with? Then I know it’s time to move on, – and try to do better next time.

Down below is a short time-lapse video clip – showing some of my old-fashioned working methods: crayons and collage – in a wishful speed!

Monsters in the making – Áslaug from Áslaug Jónsdóttir on Vimeo.

Skrímslin í Norðurlandahúsinu | Travelling exhibition – opening in Tórshavn

Skrímslin í Færeyjum: Upplifunarsýningin Skrímslin bjóða heim opnaði 1. apríl í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum. Þá hófst einnig barnamenningarhátíð Norðurlandahússins, Barnafestivalurin 2017, sem stóð til 9. apríl með metnaðarfullri dagskrá og viðburðum: tónleikum, list- og leiksýningum.

Sýningin um skrímslin tvö er farandsýning og var upphaflega sköpuð fyrir Gerðuberg menningarhús. Við hönnuðir sýningarinnar fylgdum henni til Þórshafnar og unnum að uppsetningunni ásamt starfsfólki Norðurlandahússins. Þar var sannarlega tekið vel á móti okkur og skrímslaheimurinn sómdi sér vel í bjartri og opinni Forhøll og hlýlegri Dansistovu.

Myndirnar sem hér fylgja eru frá opnunardeginum í Norðurlandahúsinu, en börn og fullorðnir virtust una sér afar vel í skrímslaheiminum og nutu samvista við lestur og leik. Það gladdi að sjá því meginmarkmiði sýningarinnar náð.

Sýningin verður opin gestum frá 1. apríl til 4. maí. Nánari upplýsingar og myndir frá fyrstu uppsetningu sýningarinnar í Gerðubergi menningarhúsi má sjá á síðunni hér. Um skrímslabækurnar má fræðast hér og um höfunda bókanna og samstarfið má lesa hér.

Travelling Exhibition: On April 1st the interactive exhibition for children: a Visit to the Monsters, opened in the Nordic House in Tórshavn in the Faroe Islands, as one of the events at the annual Children’s Festival, Barnafestivalurin 2017.

The exhibition is based on the books about Little Monster and Big Monster by Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler and Rakel Helmsdal. It was originally designed and on display in Gerðuberg Culture House in 2015-2016. Art direction and exhibition design was executed by Áslaug Jónsdóttir and Högni Sigurþórsson – and we two, Högni and I, travelled to Tórshavn to work on this version for the Faroese friends of the monster series. Our good hosts and co-workers truly made us and the two monsters feel at home in The Nordic House in Tórshavn and we certainly enjoyed working in the beautiful elements of the Nordic House.

The following photos are mostly from the opening earlier this month. I was delighted to see that both children and grown-ups found pleasure in what the exhibition is all about: reading and playing together.

The exhibition is open until May 4th. Further information in Faroese here. See also photos from the first version in Gerðuberg Culture House and read more about the exhibition on the page here. Click on the links to read more about the monster series or the three authors and their collaboration.

Smellið á myndirnar til að stækka. | Click on the images to enlarge.

Áslaug Jónsdóttir og Högni Sigurþórsson

Við Högni þökkum fyrir okkur! | Happy exhibition designers give thanks for a delightful stay in Tórshavn!

 

 

Dagur barnabókarinnar | Happy International Children’s Book Day 2017

Skrímslafundur: Gleðilegur dagur barnabókarinnar er að kveldi komin. Það var vel við hæfi að ég eyddi deginum á ströngum vinnufundi með góðum vinum og samstarfsfólki: Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. Við hittumst í þetta sinni í Þórshöfn í Færeyjum og fórum yfir nýjar sögur og handrit að bókum um litla og stóra skrímslið.

Við gátum líka fagnað opnun upplifunarsýningarinnar um skrímslin tvö, Skrímslin bjóða heim, sem opnaði 1. apríl í Norðurlandahúsinu í Færeyjum, en ég birti án efa bráðlega myndir frá opnuninni og vinnunni við sýninguna.

Monster meeting! April 2nd 2017: I hope you all had a happy International Children’s Book Day! I spent the day accordingly, working on new stories and manuscripts for the series about Little Monster and Big Monster, collaborating with my friends and colleagues Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. This time we met in Tórshavn in the Faroe Islands where the interactive exhibition: a Visit to the Monsters opened in the Nordic House in Tórshavn on April 1st 2017. I will most definitely post information and photos from the opening very soon!

Skrímslin í Færeyjum | Travelling exhibition

Skrímsli á ferð: Brátt líður að því að litla skrímslið og stóra skrímslið bjóði færeyskum börnum heim og hreinlega inn á gafl til sín. Upplifunarsýningin um skrímslin tvö verður sett upp í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum á barnmenningarhátíðinni Barnafestivalurinn 2017 og verður opin gestum frá 1. apríl til 4. maí. Nánar er sagt frá sýningunni og hátíðinni hér á heimasíðu Norðurlandahússins, en margar myndir og fleira um farandsýninguna „Skrímslin bjóða heim“ má kynna sér á síðunni hér.

Einn þriggja höfunda skrímslabókanna er færeyska skáldkonan Rakel Helmsdal. Hún rekur líka eigið sitt brúðuleikhús: Karavella Marionett-Teatur og hefur sett upp brúðuleik um skrímslin tvö. Rakel undirbýr nú líka pappírsbrúðuleik þar sem hún nýtir myndlýsingarnar mínar úr skrímslabókunum sem efnivið og sprettibókarformið (pop-up) sem leiksviðið. Fyrstu drög má sjá á ljósmyndunum hér fyrir neðan.

Travelling Exhibition: The interactive exhibition Visit to the Monsters is soon to be opened in the Nordic House in Tórshavn in the Faroe Islands, as on of the events on the annual Children’s Festival. The exhibition will open on April 1st 2017 and is open until May 4th. Further information in Faroese here. The exhibition was originally on display in Gerðuberg Culture House in 2015-2016. See photos and read more about the exhibition on the page here.

One of the three authors of the Monster series is the Faroese writer Rakel Helmsdal. She also runs her one-woman puppet-theater: the Karavella Marionett-Teatur and has played a puppet show with Little Monster and Big Monster. She is now preparing a show with paper puppets, basing her images and figures on my illustrations from the books, using the pop-up book art form as stage. The photos below show her first drafts. So, our Faroese friends of the two monsters may look forward to some exciting shows in Tórshavn in the coming months! See you in Tórshavn!

 

 

Gjugg í borg | Peek-a-boo

Myndskreytingar: HönnunarMars, hin árlega hátíð hönnunar og lista í Reykjavík, verður haldin dagana 23. – 26. mars með fjölbreyttri dagskrá og viðburðum. Ég tek þátt í sýningu á myndlýsingum pólskra og íslenskra bókateiknara, á sýningunni „Gjugg í borg“ í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Sýningin opnar 21. mars og stendur til 3. apríl.

Þátttakendur á sýningunni eru: Marta Ignerska, Monika Hanulak, Małgorzata Gurowska, Agata Dudek, Paweł Pawlak, Iwona Chmielewska, Marianna Oklejak, Piotr Socha, Katarzyna Bogucka, Ola Płocińska, Dawid Ryski, Robert Czajka, Edgar Bąk, Aleksandra and Daniel Mizielińscy, Emilia Dziubak, Marianna Sztyma, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Ari Hlynur Guðmundsson Yates, Halldór Baldursson, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Áslaug Jónsdóttir. Sýningarstjóri er Ewa Solarz.

Nánari upplýsingar um sýninguna má finna hér á heimasíðu Hönnunarmars og viðburðasíðu á Facebook.


Illustration: The annual design festival DesignMarch in Reykjavík will be held from March 23. to 26. I will take a small part as one of the exhibitors of children’s books illustrations in the exhibition “Peekaboo” at the Culture House in Reykjavik.

The exhibition will tell the story of Polish and Icelandic illustrated children’s books by presenting the best works of illustrators from both countries. 16 Polish and 6 Icelandic authors will be featured. The event will be divided into two parts: an exhibition of illustrations and books, and a programme of workshops for children and illustrators.

The last decade has seen a revival of books for children in Poland. New publishing houses are constantly popping up and taking the risk of publishing contemporary and innovative books. And the world has taken note. Polish books regularly receive the Bologna Ragazzi Award – the most important international children’s book award. A similar development can be observed in Iceland’s children’s literature, where illustrated children’s books play a very important part. Iceland is fortunate to have committed, young illustrators, who are succeeding at recreating Icelandic children’s literature, which is the foundation of Icelandic literature as a whole. The Peekaboo Exhibition at the Culture House in Reykjavik showcases the most interesting children’s’ books illustrated by 16 Polish and 6 Icelandic artists. The books show the artists’ diversity and wit – the exhibition’s design allows children to explore the books’ characters. The exhibition will be accompanied by a lecture about contemporary Polish illustration, a meeting with some of the illustrators and a workshop programme for both Polish children living in Iceland and Icelandic children.

Participating artists: Marta Ignerska, Monika Hanulak, Małgorzata Gurowska, Agata Dudek, Paweł Pawlak, Iwona Chmielewska, Marianna Oklejak, Piotr Socha, Katarzyna Bogucka, Ola Płocińska, Dawid Ryski, Robert Czajka, Edgar Bąk, Aleksandra and Daniel Mizielińscy, Emilia Dziubak, Marianna Sztyma, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Ari Hlynur Guðmundsson Yates, Halldór Baldursson, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Linda Ólafsdóttir and Áslaug Jónsdóttir.

Ewa Solarz is the curating the exhibition. The exhibition will run until 2nd of April.

– http://honnunarmars.is/work/peekaboo/

Links:
Peek-a-boo / DesignMarch
Facebook event
article in Polish: Iceland News.

Hvað nú litla skrímsli? | What’s up Little Monster?

skrimslaskissjan-2017♦ Mánudagsriss: Skrímslin tvö eru alltaf eitthvað að bralla. Þau halda áfram að banka á dyr og setjast að mér við teikniborðið. Hvað þau taka sér næst fyrir krumlur og klær er leyndarmál eða öllu heldur óleyst mál! Við höfundarnir þrír: Áslaug, Kalle og Rakel, eigum handrit í skúffunum sem við höldum áfram að pússa og senda á milli. En vonandi verður ekki langt í næst bók.

Upplifunarsýningin Skrímslin bjóða heim heldur brátt af stað í ferðalag og verður væntanlega opnuð í Norðurlandahúsinu í Færeyjum 1. apríl næstkomandi.

Samið hefur verið um útgáfu á fleiri erlendum þýðingum á skrímslabókunum og verður sagt frá þeim útgáfum síðar.

♦ Monday sketching: Little Monster and Big Monster tend to turn up at my desk time and again, bringing their odd stories to be told in pictures and words. We the three authors, Áslaug, Kalle and Rakel, have a few manuscripts we are working on. What the monsters are up to is still a secret, or still unsolved! But hopefully new books will come out of it before all too long.

The interactive exhibition Visit to the Monsters will go traveling and open in the Nordic House in Tórshavn in the Faroe Islands in April.

Rights have been sold for more books in the Monster series to be published abroad, more languages and titles. Further monster news about that when time comes!

Skissa dags. | Sketch date: Jan. 2017

Bókadómur í Tékklandi | Yes. No means No!

NeTekk♦ Bókadómar: Í vor komu fyrstu tvær bækurnar í bókaflokknum um litla skrímslið og stóra skrímslið út á tékknesku hjá forlaginu Argo í Prag, í þýðingu Mörtu Bartošková. Í viðskiptadagblaðinu Hospodářské noviny, sem gefið er út í Prag, var á dögunum bent á þrjár bækur eftir íslenska og norræna höfunda með stuttum bókadómum: það er Hálendið eftir Steinar Braga, Argóarflísin eftir Sjón og Nei! sagði litla skrímslið eftir okkur norræna tríóið, höfunda skrímslabókanna. Umfjöllun Petr Matoušek má lesa hér: Knižní tipy: Island chápe slovo jako životabudič.

Á heimasíðu bókmenntaverkefnisins Rosteme s knihou er einnig mælt með fyrstu skrímslabókinni eins og lesa má hér: Ne! Řeklo strašidýlko. 

Nánar um tékknesku útgáfuna hjá Argo: Ne! Řeklo strašidýlko (Nei! sagði litla skrímslið) og Strašidláci nebrečí (Stór skrímsli gráta ekki). Bækurnar fást víða í netverslunum og lesa má brot úr bókunum hér og hér.

♦ Book review: The first two books in the series about Little Monster and Big Monster in Czech were released in May, published by Argo Publishing house in Prague, translated by Marta Bartošková. The daily newspaper Hospodářské noviny, published in Prague, reviewed three Icelandic/Nordic books last week, among them No! Said Little Monster or Ne! Řeklo strašidýlko by us three authors in the Nordic monster-team. The review and the book tips by Petr Matoušek can be read online: Knižní tipy: Island chápe slovo jako životabudič – as well as in the clip below.

Little monster’s outcry is also recommended by Rosteme s knihou – a literary project encouraging reading, see: Ne! Řeklo strašidýlko. 

To read more about the Czech publications click here: Ne! Řeklo strašidýlko, and here: Strašidláci nebrečí. The books can be bought in many online bookstores. To read a sample, click here and here.

Screen Shot Ne! Czech

Hospodářské noviny – Petr Matoušek: Knižní tipy: Island chápe slovo jako životabudič. 19.08.2016

Sagan af bláa hnettinum á tyrknesku | The Story of the Blue Planet in Turkish

Sagan af bláa Tyrkneska

♦ Útgáfufréttir: Ég má ekki gleyma því að tíunda fregnir af sporbraut bláa hnattarins: Sögunnar um bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason – með myndum og útliti eftir ofanritaða. Bókin kom út á tyrknesku í byrjun apríl hjá Pegasus forlaginu í Istanbul. Brot bókarinnar er það sama og á bresku og bandarísku útgáfunni. Titillinn er Mavi Gezegenin Hikâyesi og má kaupa víða í netverslunum þegar leitað er eftir.

Tyrkneska forlagið notar í auglýsinguna hér fyrir ofan myndina af börnunum að kjósa: naglann úr sólinni eða áfram flug og stuð. Og það er nú eins og Gleði-Glaumur sagði: „Ykkar er valið, börnin mín“. Senn líður að forsetakosningum. Frambærilegir valkostir eru nokkrir, en gott ef það glittir ekki orðræðu Gleði-Glaums hjá öðrum. Í aðdraganda kosninga hjá börnunum á bláa hnettinum reitti Gleði-Glaumur af sér ósmekklega aulabrandara, var með hræðsluáróður um að allt yrði fúlt og leiðinlegt ef hann yrði ekki fyrir valinu og gaf auðvitað loforð um „meira stuð“. Hulda og Brimir áttu ekki miklu fylgi að fagna – en þau höfðu sannarlega siðferðilega yfirburði og fengu sitt fram að lokum. Gleði-Glaumur fékk vissulega að kalla sig kóng – því Hulda og Brimir voru glögg að greina valdasýkina og græðgina sem þau svo héldu frá raunverulegum yfirráðum.

Það þarf engan kóng á Bessastaði en þjóðinni getur gagnast forseti sem hugar að framtíðinni og mennskunni og minnir okkur á mikilvæg gildi. Andri Snær Magnason er ekki bara frjór og skemmtilegur hugsuður og snilldargóður rithöfundur heldur ákjósanlegur forseti fyrir þjóð sem er dálítið hart leikin af því að fljúga hátt, eins og börnin á bláa hnettinum. Andra Snæ er lagið að benda á fersk sjónarhorn og að beina athygli okkar að málum sem skipta sköpum fyrir þjóðina og stöðu okkar í veröldinni. Ég styð Andra Snæ til embættis forseta Íslands og treysti honum til þess að nýta embættið til góðra verka í anda Huldu og Brimis, villibörnunum á hnettinum bláa.

♦ Translation – book release: I try not to forget to point out new translations of The Story of the Blue Planet by Andri Snær Magnason with illustrations by yours truly. So: this Turkish edition was out in April, published by Pegasus Publishing house in Istanbul. The title is Mavi Gezegenin Hikâyesi, available in many online stores.

Author Andri Snær Magnason is now running for the position as president of Iceland. I wholeheartedly support his candidacy! Vote for Andri Snær!

Skrímslin á tékknesku | The Monster series in Czech

NeTekk StrasidlaciTekk

♦ Útgáfufréttir: Skrímslin tvö halda áfram ferð sinni um heiminn. Tvær fyrstu bækurnar í bókaflokknum um litla skrímslið og stóra skrímslið er nú komnar út á tékknesku hjá forlaginu Argo í Prag, í þýðingu Mörtu Bartošková. Lesa má nánar um tékknesku útgáfuna hjá Argo hér: Ne! Řeklo strašidýlko (Nei! sagði litla skrímslið) og Strašidláci nebrečí (Stór skrímsli gráta ekki). Bækurnar fást m.a. í netverslun hér og hér – og lesa má brot úr bókunum hér og hér.

♦ New releases: The two monster friends continue to travel the world! The first two books in the series about Little Monster and Big Monster have just been released in the Czech language, published by Argo Publishing house in Prague, translated by Marta Bartošková. Read more about the publications here: Ne! Řeklo strašidýlko, and here: Strašidláci nebrečí. The books can be bought online here and here. To read a sample, click here and here.

Skrímsli-á-tékknesku

 

 

Arabísku skrímslin | The Monster series in Arabic

ArabicMonsterBooksweb

♦ Lesið á arabísku: Mikið væri gaman að kunna arabísku! Ég gat ekki annað hugsað þegar ég fékk í hendur nýju útgáfurnar af skrímslabókunum á þessu fallega og heillandi tungumáli. Það rifjaðist líka upp þessi gagntakandi tilfinning að stara ólæs í bók sem barn og langa til að þekkja galdurinn. Ég er hrædd um að það myndi nú ekki ganga eins greitt að læra að lesa arabískuna, ég kæmist ugglaust hvorki aftur á bak eða áfram! En hafi nú einhver hug á að næla sér í arabískar skrímslabækur þá er um að gera að hafa samband við útgefandann: Al Hudhud Publishing í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fimm titlar eru komnir út. Þýðandi er sýrlendingurinn Lama Ammar, þýðandi og fréttakona. Sjá fleiri fréttir um skrímslin á arabísku: hér og hér.

♦ Monsters in Arabic: It was such a delight to receive my copies of the five titles from the Monster series in Arabic. I so wished I could read that beautiful language! Browsing through the books felt as way back then when I didn’t know how to read but really wanted to get hold of that magic key. I don’t think it would happen as fast now, alas! But for those of you who can read Arabic and would like to get hold of copies of the books, do contact the publisher: Al Hudhud Publishing, based in Dubai in the United Arab Emirates. The Arabic translation is by Lama Ammar, translator and reporter.
Older news on the Arabic translations see here and here.

Page from زغبور وكعبور في الظلام - Monster In the Dark

Skrímslaskraut | Christmas decorations

SkrimslaJolaseria

♦ Viðburður: Á morgun, laugardaginn 12. desember, verður skreytt heima hjá skrímslunum í Gerðubergi menningarhúsi. Þar verður hægt að spreyta sig á alls konar jólaföndri að hætti litla skrímslisins. Stóra skrímslið gat ekki beðið og er búið að hengja upp jólaseríurnar (án þess að flækja þær saman!). En auðvitað þurfa skrímslin hjálp við að punta svona mörg hús og tré. Við skrímslavinir hlökkum því til að sjá sem flesta á morgun, kl 13:30-15:30. Nánari upplýsingar: Gerðuberg menningarhús og hér er viðburðurinn á FB. Upplifunarsýningin Skrímslin bjóða heim stendur yfir í Gerðubergi.

♦ Event: Little Monster and Big Monster are preparing for the holidays and will be decorating their homes at Gerðuberg Culture House tomorrow, 12. Dec., from 1:30 pm to 3:30 pm. Big Monster could not wait and has already put up some fairy lights and Little Monster has been busy with the scissors. But they will sure need some help decorating all the trees and all the houses, windows and doors. We welcome all monster-friends to this event! Further information: Gerðuberg Culture House and a FB-event. The exhibition A Visit to the Monsters, based on the Monster series by Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler and Rakel Helmsdal is on display in Gerðuberg Culture House.

LSklippJolweb

Skrímslin á arabísku | The Monster series in Arabic

TheMonsterSeriesARABIC5covers

♦ Bókaútgáfa: Þá er komið að því að skrímslin tvö tali arabísku! Fimm titlar eru að koma sjóðheitir úr prentsmiðju. Útgefandinn er Al Hudhud Publishing í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þýðandi er sýrlendingurinn Lama Ammar, þýðandi og fréttakona. Þrír titlar voru til sölu og sýnis á alþjóðlegu bókamessunni í Sharjah í nóvember og tvær bækur til viðbótar eru væntanlegar úr prentsmiðju þessa dagana. Sjá einnig: fleiri fréttir um skrímslin á arabísku.
Page-Monster-Kitty-Arabic

♦ Book release: Little Monster and Big Monster are speaking in Arabic now! Five titles are being released from Al Hudhud Publishing in Dubai in the United Arab Emirates. The Arabic translation is by Lama Ammar, translator and reporter. Three titles were already for sale and on display at Sharjah International Book Fair in November and two more titles will follow any time soon.

See also: In Abu Dhabi 2015.

 

Skrímslin bjóða heim í dag | Exhibition opening today!

0-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“ opnar í Gerðubergi Menningarhúsi í dag!
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens today, Oct. 24th 2015, in Gerðuberg Culture House.

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 1

1-dagur

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“ opnar í Gerðubergi Menningarhúsi á morgun!
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 1 day to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 2

2-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“  opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 2 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 2 days to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 3

3-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“ opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 3 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 3 days to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 4

4-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“  opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 4 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 4 days to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 5

5-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“  opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 5 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 5 days to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 6

6-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“ opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 6 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 6 days to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 7

7-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“ opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 7 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 7 days to go!

Skrímslin bjóða heim | Counting down – 8

8-dagar

♦ Sýningin: „Skrímslin bjóða heim“ opnar í Gerðubergi Menningarhúsi eftir 8 daga.
♦ Exhibition: “Skrímslin bjóða heim” – A Visit to the Monsters opens Oct. 24th 2015 in Gerðuberg Culture House. 8 days to go!