Gleðilegt sumar! | What?
Tag Archives: Áslaug Jónsdóttir
Dagur bókarinnar | World Book Day
♦ Bókafréttir: Dagur Jarðar var í gær og þá gat ég sagt fréttir af Bláa hnettinum. Alþjóðlegur dagur bókarinnar er svo í dag. Þann dag er einmitt tilkynnt um Bókmenntaverðlaun barnanna í Svíþjóð: Bokjuryn. Þar hafa bækurnar um skrímslin jafnan komist á lista. Í dag kom líka í ljós að Skrímslaerjur (Monsterbråk) var að mati barna í Svíþjóð valin ein af 10 bestu myndabókum ársins 2013, kom þar í fjórða sæti. Sjá frétt um alla vinningshafa hér á heimasíðu Bokjuryn.
♦Book News: Happy World Book Day! Here is my advice for the day: If you don’t have the time to read a big novel today, try a good picturebook. It’s like reading a solid poem, you get the whole universe of a book, a whole story, in a short text. Combined with the visual art it stimulates so many parts of your brain. And if you dare, you might even connect with that inner child of yours.
Also: Good news from Sweden this morning! Monster Squabbles or Monster Row (Skrímslaerjur) is one of 10 best picturebooks in 2013, according to Swedish children or “The Children’s Book Jury“. Se more about the winners of Bokjuryn here.
Sagan af bláa hnettinum | The Story of the Blue Planet in Taiwan

♦ Þýðingar. Útgáfufréttir! Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason er nýkomin út á kínversku í Taiwan. Útgefandinn er Global Kids Books – Commonwealth Publishing Group. Bókin kom fyrst út á kínversku hjá Beijing Science and Technology Press árið 2009.
Á heimasíðu Global Kids Books er kynning á bókinni og umfjöllun um hana. Bókin er fallega brotin með letur í lóðréttum dálkum.
♦ Translations. Book release in Taiwan! Global Kids Books in Taiwan has just published a new Chinese translation of The Story of the Blue Planet by Andri Snær Magnason. The book was published by Beijing Science and Technology Press already in 2009.
Read introduction and reviews (in Chinese) here at Global Kids Books site. The new book has a nice layout with vertical text. Original illustrations by Áslaug Jóndóttir.

Sagan af bláa hnettinum á kínversku, útg. 2009 | In Chinese by Beijing Science and Technology Press 2009
Fuglar á páskum | Easter birds
♦ Ljósmyndir: Þrátt fyrir páskahretið syngur í mó. Farfuglarnir komu með sunnanáttinni og ég stóðst ekki mátið, skaut á þá með linsunni og taldi tegundir. Veit reyndar aldrei hvort ég greini ýmsar mávategundir rétt. Einn hefur fuglinn auðvitað verið hér í allan vetur: krummi svarti. Skógarþröstur, hrossagaukur og þúfutittlingur vildu ekki sitja fyrir á mynd, en létu í sér heyra.
♦ Photos: A solo raven is often the only bird you see in the winter near our farm. But now the migratory birds are enlivening the era with song and busy flights, even though the weather this Easter was extremely bad. Happy to see all the newcomers I went out with my camera and caught a few.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 19.-21.04.2014
Luktar dyr | The doors of Old Tallinn
♦ Föstudagsmyndir: Dyrnar í gömlu Tallinn eru víða áberandi fallegar og nostursamlega málaðar í mismunandi litum. Hér er bara lítið sýnishorn. Fleiri myndir frá Tallinn hér í fyrri pósti.
♦ Photo Friday: I guess the colorful and fine-looking doors of old Tallinn have been photographed as often as an Icelandic geysir … But for me this is a memento of the nice walks I had around the city in early April.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 03-05.04.2014
Föstudagurinn langi | Good Friday
♦ Myndlýsing: „Fermingarbarn, til fylgdar þig Hann kveður …“ Þessi mynd birtist í Degi heitnum og fylgdi pistli sem var skrifaður árið 1998 í tilefni af hinni árlegu fermingarvertíð. Dæmigerð íslensk ferming getur sannarlega verið vígsla inn í heim fullorðinna, en hefur, rétt eins og mammonskt jólahaldið, fátt sameiginlegt með hugmyndinni um lítillátan Jésú. Myndin rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá í dag raffíneraða mynd eftir Banksy: Jesus with Shopping Bags (2005).
♦ Illustration: This is an old illustration (1998) I made for the long gone newspaper Dagur. For a short while I wrote a column in the paper and this collage accompanied an article about the Lutheran confirmation – the Icelandic style. The confirmand is usually showered with money and expensive presents at a big family gathering. For an 14-year-old it is almost impossible to turn down such a good deal, whether a religious youngster or not. The collage was made from the typical sesonal and associated advertisments.
Anyway, I saw Banksy’s elegant Jesus with Shopping Bags (from 2005) on the internet today so I remembered my own crucifix of the similar kind. And it is Good Friday.
Allar klær úti | A monster and a cat
♦ Myndlýsingar: Ég er að vinna að næstu skrímslabók sem kemur út í haust. Forlagið sagði frá því í smá frétt hér. Kattavinir geta farið að hlakka til. Ég skemmti mér að minnsta kosti vel með skrímslakisa.
♦ Illustration: I am working on the next book about Little Monster and Big Monster. Our publisher in Iceland, Forlagid, has already posted this illustration with news on their website. I am very much enjoying my meetings with the monster cat.
Skrímslin á útopnu | Book release in Spain
♦ Bókaútgáfa: Forlagið Sushi Books á Spáni hefur nú gefið út fyrstu tvo titlana af bókunum um litla og stóra skrímslið. Litla skrímslið dregur ekki af sér á forsíðu vefsins hjá Sushi Books, sem er barnbókaútgáfa forlagsins Rinoceronte og gefur bækurnar út á spænsku (kastilísku), galisísku, katalónsku og basknesku. Með því að smella á bókakápurnar hér fyrir neðan má lesa nokkrar síður úr bókunum.
♦ Book release: Shout it out! Sushi Books in Spain are launching the first two books in the monsterseries in Spanish (Castilian), Galician, Catalan and Basque languages. Sushi Books is an imprint of the publisher Rinoceronte.
Click on the book covers below to read a few pages from the books.
Takk Tallinn! | Beautiful Tallinn
♦ Föstudagsmyndir: Ég er enn að melta kynni mín af Tallinn eftir ferðina þangað í byrjun apríl. Falleg borg og skemmtileg og ekki að undra þó gamli miðbærinn sé á Heimsminjaskrá Unesco. Eins og gengur er ferðamannaiðnaðurinn áberandi en þarlendir lausir við að abbast upp á gesti með ágengri sölumennsku. Ég kunni vel við það. Bílaumferð er mjög takmörkuð um elsta borgarhlutann og gönguferðir þar því einstaklega ánægjulegar.
♦ Photo Friday: I am still pondering about Tallinn and Estonia, since my visit last week. Tallinn is such a picturesque city with its medieval old tower walls and grand buildings. No wonder the old city center is one of Unesco World Heritage Sites. This almost car-free part of the city makes it clean and peaceful. I would love to come back in the summertime when wandering about would be even more pleasant. Spring was just around the corner …

Graffiti in Tallinn – Through times, the inhabitants of Tallinn must have had their share of fear. For one thing, there was a reason for the enormous fortifications that now make the city so attractive. Lets hope times of fear are over.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 03-05.04.2014
Töskurnar í Tallinn | The old suitcases
♦ Á ferð: Í Hernámssafninu í Tallinn eru langar raðir af þessum gömlu ferðatöskum sem minna á þær þúsundir karla, kvenna og barna sem flutt voru nauðug til Síberíu á Sovét-tímanum, um og upp úr seinni heimstyrjöld.
Tallinn er fögur og full af sögu sem er ekki alltaf fögur. Fleiri myndir síðar!
♦ Travels: In the Museum of Occupations in Tallinn, Estonia, these many suitcases are strong symbols for the mass deportations made by the Soviet occupiers in the WWII and long after.
I will post more photos from Tallinn later, such a beautiful city.
Ljósmynd tekin | Photo date: 04.04.2014
Á tali í Tallinn | Seminar and Nordic forum in Tallinn
♦ Bókaþing! Ég verð í Tallinn á bókaþingum í vikunni, með spjall um skrímsli og fleiri kvikindi.
2. apríl: Seminar “Lasteraamatu sünd ja teekond” – Eesti Lastekirjanduse Keskuses.
3. apríl: II Põhja- ja Baltimaade kirjandusfoorum “Kas laps loeb?” – Nordic – Baltic Forum.
Og svo er 31. mars! Svona líður tíminn hratt.
♦ Book talk! I will be in Tallinn later this week, talking about my books, the fellowship of monsters and such.
April 2.: Seminar “Lasteraamatu sünd ja teekond” – Eesti Lastekirjanduse Keskuses.
April 3.: II Põhja- ja Baltimaade kirjandusfoorum “Kas laps loeb?” – Nordic – Baltic Forum.
Already March 31! Time flies.
Úti í móa | The meadows in March
Á teikniborðinu | On my desktop
Brúður og ljóðlist | Puppets and poetry
♦ Dagatalið: Nei, hættið nú alveg! Í gær var Dagur barnaleikhúsins. Í dag, 21. mars, er alþjóðlegur Dagur brúðuleikhússins og í Alþjóðadagur ljóðsins í þokkabót. Hvað skal segja? Ljóðskáldin eru svo mörg og góð að ég treysti mér ekki til að benda á neitt eitt í tilefni dagsins. Læt til dæmis Reykjavík bókmenntaborg um það. En mæli eindregið með ljóðalestri í dag! Það er alltaf tími fyrir eitt ljóð.
Í tilefni dagsins ætla ég samt að rifja upp eina hjartfólgna persónu: Sindra silfurfisk sem varð til í samvinnu við Þjóðleikhúsið og barnaleikhúsið Kúluna undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Hér má sjá fleiri myndir úr sýningunni. Eins og gengur eru textar margsinnis endurskrifaðir og ýmsu hent út í handritsgerðinni. Þar á meðal fengu að fjúka frekar ískyggileg vers um hætturnar í hafinu. Hér er hluti af því kvæði, sem ætlað var til söngs:
Á fiskimiðum liggja lóð
og launráð falin köld,
– þú heldur beint á hættuslóð
og hefur engan skjöld!
Þig drauganetin draga að
með dularfullum seið;
þó brjótast viljir beint af stað
þú berst samt þvert af leið.
Það hafa ýmsir á því grætt
að öngla lítinn fisk.
Já, þannig verður öll þín ætt
að enda færð á disk.
Þín bíður ugglaust voðinn vís,
þín vörn er tæp um sinn
sem plokkfiskur í paradís
þú pottþétt svífur inn.
Það er eins gott að þetta fór ekki með. Nóg hef ég grætt börn í leikhúsi.
♦ The Calendar: Yesterday it was The World Day for Theatre for Children. Today, 21. March, is The World Puppetry Day and The World Poetry Day! There are so many good poets, I dare not point out one for the occasion. But I wholeheartedly recommend reading a poem today – preferably every day!
The photo above shows a scene from a black light puppet theater show I wrote for the National Theater. You may find more information about Shimmer the silverfish here. There are a few professional puppet theaters in Iceland where of I would especially mention two: Bernd Ogrodnik’s Brúðuloftið in the National Theater and Helga Arnalds’ Tíu fingur. For further information on Icelandic puppet theater see Unima Iceland.
I would also like to recommend my special friends in the Faroe Islands: Karavella Marionett Teatur – run by Rakel Helmsdal, who did a puppet play with Little Monster and Big Monster from the book series.
Bókakápa | Book cover for Rakel Helmsdal
♦ Bókakápa: Samstarfskona mín í Færeyjum, Skrímsla-Rakel Helmsdal, er að senda frá sér nýja bók fyrir ungmenni á öllum aldri. Ég fékk það skemmtilega verkefni að gera kápu á bókina. Sagan segir frá stúlkunni Argantael og er að mörgu leyti bæði átaka- og áhrifamikil. Bókin heitir á frummálinu: „Hon, sum róði eftir ælaboganum“ eða „Hún, sem réri eftir regnboganum“. Rakel mun fagna útgáfunni á miðvikudaginn, 19. mars, í Gamla Bókhandil í Torshavn. Hér má lesa um bókina og viðtal við Rakel í Sandoyar Portalurin.
Til hamingju með nýju bókina, Rakel!
♦ Book cover: My friend and co-author Rakel Helmsdal has a new book coming out. I had the honor to do the cover design. This is a young-adult fiction, a dramatic story of the girl Argantael, her troubles and emotional turmoil. The title in Faroese is: “Hon, sum róði eftir ælaboganum“ or: “She, who rowed towards the rainbow”.
See more: Rakel’s homepage and the publisher Bókadeildin, and an interview with Rakel in Sandoyar Portalurin.
Congratulations on the new book, Rakel!
Skrímslaerjur í bókasafnsviku | The Nordic Library Week 2014
♦ Bókatíðindi: Myndabókin Skrímslaerjur hefur verið valin til upplestrar í Norrænu bókasafnsvikunni 2014, en tilkynnt var um bókavalið á heimasíðu verkefnisins fyrir skemmstu. Þema ársins er hið norræna tröllakyn og bækurnar sem urðu fyrir valinu eru:
- Skrímslaerjur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler and Rakel Helmsdal
- Eyjan hans Múmínpabba eftir Tove Jansson
- Tröll eftir Stefan Spjut
Norræna bókasafnsvikan hefst með upplestri úr þessum bókum þann 10. nóvember 2014. Þá viku geta öll bókasöfn á Norðurlöndum og Baltnesku löndunum nálgast efni úr bókunum til lestrar á allt að 14 tungumálum. Árið 2013 tóku yfir 1500 bókasöfn og skólar þátt í verkefninu. Þess má geta að árið 2010 var Sagan af bláa hnettinum ein af bókum ársins, undir þemanu: „Töfraheimar Norðursins“.
♦ Book event: Monster Squabbles / Monster Row has been selected for reading in the annual Nordic Library Week 2014. A selection of three books has just been announced on the project’s homepage. The theme is trolls and similar creatures. The selected books are:
- Monster Squabbles by Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler and Rakel Helmsdal
- Moominpappa at Sea by Tove Jansson
- Troll by Stefan Spjut
This celebration of Nordic books, libraries and reading starts on November 10. 2014, when illustrations and texts from these books will be available in up to 14 languages. Last year this event took place with the participation of more than 1500 libraries, schools and community centres in Scandinavia, the Baltic States, Greenland, Faroe Islands and Iceland.
Meira um skrímslabækurnar HÉR og HÉR. | More about the Monster series HERE and HERE.
Það sem af er mars | Mid-March and monkey business
♦ Föstudagsmyndir: Jæja þá. Það er kominn miður mars. Ég var að gramsa í myndasafninu. Skoðaði myndir sem ég hef tekið í marsmánuði. Í mars eru öll veður. Oft er snjór og slabb, en stundum kemur vorið of snemma eða sýnir sig í stutta stund: þá gala gaukar og þá spretta laukar – svo frýs allt saman í harðan klakaköggul.
Mér fannst myndin hér fyrir ofan nokkuð dæmigerð fyrir mars. Það eru allir fleygiferð í slabbinu.
Svo fann ég enn betri táknmynd fyrir stemninguna á Íslandi undanfarnar vikur. Ég bið samt apann afsökunar á samlíkingunni sem er mjög ósanngjörn í hans garð.
♦ Photo Friday: I was going through files of photos dating from the month of March. The photo above is pretty typical for the weather and the atmosphere in March in Reykjavík: wet snow, melting snow, gray days, sunny days, sometimes very promising and much-too-early days of spring; then snow and frost again …
But the sight of this screaming creature on the photo below made immediate associations to the political state of my country or at least the atmosphere in March for the past weeks. Oh, my! All that monkey business, all the growling and yelling! (I feel I must apologize to the monkey for this reference: sorry, sorry!). Where will this anger and the sense of being trapped-in lead to?
Ljósmyndir teknar | Photo date: 28.03.2004 og 31.03.2004
Sagan af bláa hnettinum | On the UKLA Book Awards 2014 shortlist!
♦ Tilnefning. Enn berast góð tíðindi frá Bretlandi því nú hefur Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason verið tilnefnd á fimm bóka úrtökulista til UKLA barnabókaverðlaunanna 2014. Þau eru veitt í þremur flokkum af The United Kingdom Literacy Association. Bókin var valin á lista úrvalsbóka fyrir lesendur á aldrinum 7-11 ára. Verðlaunahafar verða tilkynntir í júlí 2014. Breski útgefandinn er Pushkin Press í London, en þýðandi er Julian Meldon D’Arcy. Sagan af bláa hnettinum er eina þýdda bókin á listunum þremur.
♦ Shortlisted! The Story of the Blue Planet by Andri Snær Magnason is shortlisted for the UKLA Book Award 2014 – for age 7-11. Winners will be announced in July 2014. Sagan af bláa hnettinum – The Story of the Blue Planet is published in the UK by Pushkin Press, London, translated by Julian Meldon D’Arcy. Read more about the award and the selected books on UKLA’s homepage.
Tilnefndar bækur | The shortlist 7 – 11:
- The Story of the Blue Planet by Andri Snӕr Magnason, illustrated by Áslaug Jónsdóttir; translation by Julian Meldon D’Arcy.
- The Terrible Thing That Happened to Barnaby Brocket by John Boyne, illustrated by Oliver Jeffers.
- The Naming of Tishkin Silk by Glenda Millard, illustrated by Caroline Magerl.
- Rooftoppers by Katherine Rundell.
- Liar and Spy by Rebecca Stead.
- The Last Wild by Piers Torday.
Looking for more information? See Forlagið publishing Children’s book catalog.
Andri Snær Magnason’s homepage.
More about The Story of the Blue Planet on www.aslaugjonsdottir.com

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna | International Women’s Day
♦ Dagatalið: 8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Já, já, það er enn þörf fyrir hann. Efast einhver? Teikningin hér fyrir ofan er meira en 20 ára gömul. Sumir gætu sagt að hún lýsti lúxusvandamáli miðað við það sem konur þurfa að kljást við víða um heim. Um leið og ég ímynda mér að eitthvað hafi breyst – þ.e. að konur í forystu geti átt fjölskyldu OG sinnt krefjandi starfi, þá heyri ég óminn af röddum sem hrósa körlum þessara sömu kvenna alveg sérstaklega: Þeir eru alveg einstakir, já, það er hreinlega merki um fyrirmyndar manngæsku ef þeir taka að sér að sjá um heimilið, um börnin, styðja sína konu… Þegar þessar raddir (ekki síður kvenna) gufa upp, hefur jafnréttinu verið náð – á því sviði. En launaseðlana vantar auðvitað á myndina …
Óska konum og körlum baráttugleði í dag!
♦ The Calendar: Today is International Women’s Day, March 8. The struggle for women’s rights is the fight for equality – for all, whatever the anti-feminists are gibbering. It is the fight for everyone’s right to enjoy and develop both their feminine and masculine sides, if you like.
The illustration above is more than 20 years old. Perhaps something has changed, yes, maybe … still, not enough.
Have an enlightened International Women’s Day.
Skrímslin á Spáni | Little Monster and Big Monster in Spain
♦ Þýðingar. Fyrstu bækurnar um skrímslin komu út á spænsku fyrir nokkrum árum hjá spænska Random House undir merkinu Beascoa. Útgefandi okkar þar yfirgaf forlagið skömmu síðar og í framhaldinu voru bækurnar í hálfgerðu munaðarleysi á Spáni og S-Ameríku, sem samningurinn tók einnig yfir. Nú hefur nýtt forlag, Sushi Books keypt útgáfuréttinn. Sushi Books er barnbókaútgáfa forlagsins Rinoceronte og gefur út bækur á fjórum helstu tungumálum spánverja. Fyrstu tvær sögurnar um skrímslin verða því brátt fáanlegar á spænsku (kastilísku), galisísku, katalónsku og basknesku. Skemmtilegt! Samkvæmt Fb-síðu Sushi Books mega lesendur eiga von á að kynnast litla skrímslinu strax í vor.
♦ Translations. Great monster-news! The first two books about the Little Monster and the Big Monster will soon be published in Spain in four languages: the Spanish (Castilian), Galician, Catalan and Basque languages. The publisher, Sushi Books, is an imprint of the publisher Rinoceronte. Book release will be this spring.
Left: from Sushi Books’ Fb page: Coming soon …
Read more about the monsterseries here: the collaborative authorship of Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal and Kalle Güettler; and the seven books already published.
Hrist og hreyfð | Out of focus
♦ Föstudagsmyndin: Tjaldar á Seltjarnarnesi leysast upp … Ég veit: ekki í fókus, hreyfð og yfirlýst. Þetta var þannig dagur. Stundum nær maður hreint ekki að fókusera á viðfangsefnin, þrátt fyrir yfirlýsingar …
♦ Photo Friday: Out of focus, blurred and shaken at Seltjarnarnes – I still liked it.
Ljósmynd tekin | Photo date: 28.02.2014
Konudagsblóm | Flowers on Woman’s Day
♦ Konudagurinn: Til hamingju með daginn konur! Og gleðilega Góu. Fallegt er veðrið og nóg til í búrinu. Er þá ekki allt gott? Hvernig er spáin?
Ég er ánægð með konudaginn. Einkum og sér í lagi af því að margir halda nú upp á sykurklístraðan Valentínusardaginn svo vonandi getur konudagurinn þá þróast í aðra átt. Ég ætla sannarlega að halda upp á daginn og skála fyrir formæðrum mínum, bústýrum og búkonum, þrautseigju þeirra og seiglu, þar sem þær máttu þreyja þorrann og góuna í þessu brjálaða landi. Ég ætla að mana allar konur, bústýrur nútíðar og framtíðar, til að hika ekki við að stýra og standa fyrir þeim búum sem nú tíðkast: fyrirtækjum og stofnunum, stórum og smáum (í þessu brjálaða landi – sumt breytist ekki). En það er eins og konur megi aðeins hoppa þar um í annarri skálminni …
Launamunur, glerþök, stöðluð og stöðnuð kynjahlutverk, þöggun, kynbundið ofbeldi og einelti … listinn er of langur. Vonandi eru konur að komast út úr þessum vonda vetri í kvenréttindabaráttunni. Það eru ýmis teikn á lofti um það. Gleðilegan konudag!
♦ Celebration: Today is “Woman’s Day”, the first day of Góa, the fifth winter month in the old Norse calendar. Yes, flowers and good food are in their place on Woman’s Day – a newer tradition than the Feast of Góa, but may have its origin in the part the mistress of the house played in welcoming the new month – or the month before: Þorri, starting with “Bóndadagur”, Man’s Day or Husband’s Day. It was the man’s turn to soften Góa – and perhaps at the same time: his woman? These two months were the hardest and therefore a good reason to honor the gods who controlled the weather and winds.
This is a day when one should honor the power and strength of women – and we sure still need that. I wish all women a very happy Woman’s Day and a mild and promising month of Góa!
Ryð | Rust
♦ Ljósmyndagrafík: Ég heimsótti fremur sorglegan stað í gær, þjónustumiðstöð bifreiða sem hafa lent í tjóni. Ég slapp með skrekkinn úr árekstri í síðustu viku, má telja mig heppna og það má ökumaðurinn sem keyrði í veg fyrir mig gera líka. Bílinn minn gæti ég hinsvegar þurft að afskrifa, að mér skilst.
Mér varð starsýnt á sum hræin á staðnum. Dapurleg, ef ekki harmræn. En svona teiknar súrefni og eldur á járn – reyndar með smá ýkjum í myndvinnslunni.
♦ Photography: Yesterday I had to visit a service center for damaged and reposed cars. I was lucky to get unharmed from a car crash last week. So did the other driver who accidentally drove into my car. But my very fine old car is probably done for.
Most of the cars at the center only had some minor bumps, but then there were the real carcasses. Above are clips of these glum drawings oxygen and fire can make on iron, … just edited a bit.
Borgin og vatnið | Colors of February
♦ Föstudagsmyndir: Reykjavík frá Laugarnesi í byrjun mánaðarins. (Ég taldi 6 byggingarkrana… Hvað er það á kranamælikvarðanum: merki um hættu eða heilbrigði?)
Fyrir neðan: Vök í Vífilsstaðavatni í dag.
♦ Photo Friday: Reykjavík from Laugarnes earlier this month. Below: Lake Vífilsstaðavatn today. Gentle, gentle colors of February.
Ljósmyndir teknar | Photos date: 08.02.2014 og 21.02.2014
Öll þessi hjörtu … | All these hearts …
♦ Dagatalið: Það er allt löðrandi í hjörtum hvert sem litið er í dag, enda er víða haldið upp á dag elskenda, dag vináttunnar: Valentínusardag. Myndlýsingin hér fyrir ofan úr sögunni Marta og Maríus, sem var gefin út árið 1998 í bókinni Sex ævintýri (– ég var hörð á þessum bókartitli, man ég, þrátt fyrir asnalegar athugasemdir sumra hjá útgáfunni). Sagan hefur ekkert með Valentínusardag að gera, en hjartnæmi vissulega! Ég ætlaði annars bara að minna á V-daginn og vona að súkkulaðið fari ekki öfugt ofan í neinn sem horfir á myndbandið hér fyrir neðan. Í dag var dansað gegn kynbundnu ofbeldi – enn mikilvægara að halda því áfram í kvöld og öll hin kvöldin …
♦ The Calendar: Valentine’s day. No, I don’t celebrate Valentine’s day. I chose to stick to the traditional Icelandic days: Konudagur (Woman’s/Wife’s Day), Bóndadagur, (Man’s/Husband’s Day) and Sumardagurinn fyrsti (First Day of Summer) to celebrate love and friendship. Still, I thought I’d wave some hearts, with this illustration from my book Six Fairy Tales, but foremost remind you to stand up and dance on V-day, and demand and end to violence against women and girls. Strike! Dance! Rise! Happy V-day!
One Billion Rising (Short Film) from V-Day Until the Violence Stops on Vimeo.
Tímamótabækur í afmælisriti | Book design and printing
♦ Grafísk hönnun. Mér áskotnaðist eintak af afmælisriti Odda sem gefið var út á síðasta ári í tilefni af 70 ára afmæli prentsmiðjunnar. Saga fyrirtæksins er rakin með því að velja og kynna eitt bókverk frá hverju ári, en auk þess eru í bókinni kaflar um grafíska hönnun, framfarir í prentun, starfrænu byltinguna o.fl. Árið 1999 er það Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason sem markar tímamótin. Þar segir m.a. frá því þegar drifið var í endurprentun í Odda í desember, en fyrst upplagið var prentað erlendis. Í textanum segir svo: „Áslaug Jónsdóttir teiknaði myndirnar í ævintýri Andra Snæs og á sinn þátt í velgengni verksins. Kápumynd hennar af hnettinum bláa og sólinni sem brosir við börnunum er einkar vel heppnuð.“ (Sótt fram í 70 ár Oddi 1943-2013, bls. 85).
Það er skemmtilegt að glugga í ritið, lesa 70 ára hönnunarsögu af bókakápum og rifja upp áhugaverða kafla í sögu grafískrar hönnunar á Íslandi í greinum eftir Guðmund Odd Magnússon og fleiri. Bókin er hönnuð af Halldóri Þorsteinssyni.
♦ Graphic design. Iceland’s largest printing company, Oddi, celebrated 70 years in business last year. An anniversary book was published, focusing on graphic design and book printing. For every year a successful book is represented as a milestone in the history of the company. The Story of the Blue Planet by Andri Snær Magnason was chosen for the year 1999. The very first edition was printed abroad but Oddi did the reprinting already in December because of good sales and the nomination to the Icelandic Literary Prize, which Andri Snær Magnason later received for the book.
A review of the illustrations and the cover goes as follows: “Áslaug Jónsdóttir illustrated Magnason’s fable and contributed to the success of the book. The cover with the blue planet and the sun smiling towards the children is excellently carried out.”
This anniversary book of Oddi Printing gives an interesting overview of graphic design and book design in Iceland for 70 years. Texts by Goddur, Guðmundur Oddur Magnússon et al. Book design by Halldór Þorsteinsson.
Babelturninn í Norræna húsinu | The Tower of Babel
♦ Bókverk. Hér kemur smá upprifjun: Á morgun opnar í Norræna húsinu sýningin HEIMA eða hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik. Þrjátíu og þrír norrænir listamenn sýna bókverk tengd þemanu: heima, heimili eða heimkynni. Íslenski bókverkahópurinn ARKIR á fjölda nýrra verka á sýningunni, sem er skipulögð af forkólfum CON-TEXT listahópsins í Danmörku. Fylgjast má með framvindu sýningarinnar á heimasíðu CON-TEXT hópsins, sem og opinni FBsíðu hópsins.
Ég sýni m.a. verkið hér fyrir ofan, nokkurs konar bókrollu sem ber heitið Babel. Samkvæmt Biblíunni var Babelturninn samkomuhús alls mannkyns um hríð eða þar til Guði þótti nóg komið af þessu metnaðarfulla sambýli og sundraði mannskapnum. Sem hefur ekki talað saman af fullu viti síðan. Í dæmisögunni um Babelturninn kristallast harmur okkar yfir óskiljanlegu og eilífu ósætti og skilningsleysi manna á milli. Alveg kjörið að kenna refsiglöðum guði um allt vesenið á okkur.
Heimili er auðvitað ekki aðeins hús heldur samverustaður þeirrar einingar sem telur fjölskyldu. Heimkynni eru ekki aðeins landsvæði heldur líka menning og samfélag. Það sem tengir fólkið saman er tungan. Tungumálið býr í okkur og við í tungumálinu. Þar erum við heima. Í bókverkinu fossar biblíutextinn um Babelturninn á fjölda tungumála en hann er sundraður í óskiljanlega flækju.
Allir jarðarbúar töluðu sömu tungu og notuðu sömu orð. Svo bar við er þeir fluttust að austan að þeir fundu lágsléttu í Sínearlandi og settust þar að. Þá sögðu þeir hver við annan: „Komum nú og búum til tígulsteina og brennum þá í eldi.“ Þeir notuðu tígulsteina í stað grjóts og bik í stað steinlíms. Og þeir sögðu: „Komum nú, byggjum okkur borg og turn sem nái til himins. Þar með verðum við frægir en tvístrumst ekki um alla jörðina.“ Þá steig Drottinn niður til þess að sjá borgina og turninn sem mennirnir höfðu byggt. Og Drottinn sagði: „Nú eru þeir ein þjóð og tala sömu tungu. Þetta er aðeins upphaf þess sem þeir munu taka sér fyrir hendur. Hér eftir mun ekkert verða þeim um megn sem þeir ætla sér. Stígum nú niður og ruglum tungumál þeirra svo að enginn skilji annars mál.“ Og Drottinn tvístraði þeim þaðan um alla jörðina og þeir hættu við að byggja borgina. Af þeim sökum heitir hún Babel að þar ruglaði Drottinn tungumál allrar jarðarinnar og þaðan tvístraði hann þeim um alla jörðina. – – – Fyrsta Mósebók 11. 1-9.
♦ Book art. Opening tomorrow in the Nordic house: the exhibition HEIMA or: “hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimaffik“. Thirty-three Nordic artists exhibit artist’s books with the theme: HOME. Nine members of ARKIR book arts group participate in the exhibition which is organized by the Danish members of the Nordic artist group CON-TEXT. News, events and remarks on the exhibition will be found at the CONTEXT homepage, as well as the group’s Facebook Page. See also more news and works at ARKIR Book Arts Blog.
I am exhibiting this book object in Silkeborg, a book scroll or a paper sculpture called Babel. According to the Bible, The Tower of Babel was what one could call a home and rendezvous of all mankind, until God Almighty decided that this ambitious commune was no good and wrecked the party: He scattered the people all over the earth and confused their language. This tale is full of grief of our failings: our endless conflicts and lack of understanding and respect for each other. Yes, lets blame a punishing god.
Home is such a wide concept. It’s not just a building, but a place of union, an assembly of those who call themselves family. Home is not just a tract of land, but also a community, home of culture. The language connects us together. We belong to the language and the language belongs to us. It markes and makes our home. In this piece I quote the biblical text in many languages, and it flows out of the tower. But it’s all messed up in a confusing babble. Alas.
Now the whole earth had one language and the same words. And as they migrated from the east, they came upon a plain in the land of Shinar and settled there. And they said to one another, “Come, let us make bricks, and burn them thoroughly.” And they had brick for stone, and bitumen for mortar. Then they said, “Come, let us build ourselves a city, and a tower with its top in the heavens, and let us make a name for ourselves; otherwise we shall be scattered abroad upon the face of the whole earth.” The Lord came down to see the city and the tower, which mortals had built. And the Lordsaid, “Look, they are one people, and they have all one language; and this is only the beginning of what they will do; nothing that they propose to do will now be impossible for them. Come, let us go down, and confuse their language there, so that they will not understand one another’s speech.” So the Lord scattered them abroad from there over the face of all the earth, and they left off building the city. Therefore it was called Babel, because there the Lord confused the language of all the earth; and from there the Lord scattered them abroad over the face of all the earth. – – – Genesis 11. 1-9.
♦ Babel á Arkarblogginu hér. Fyrir neðan: Stutt grein í Fréttablaðinu dags. 24.01.2014 um sýningaropnun í Norræna húsinu. ATH. sýningin opnar kl. 16. á morgun!
♦ Babel presented at ARKIR Book Arts Blog here. Below: Newspaper clip Fréttablaðið 24.01.2014 on the exhibition HOME.
Í draumum mínum … | In my dreams …
♦ Föstudagsmyndin: Hef ég nokkuð minnst á sýninguna sem opnar á morgun …? Jú, kannski? Jæja, föstudagsmyndin er því úr einu verkanna sem ég sýni þar, nefnilega hárómantísku bókverki sem heitir: Í draumum mínum er ég alltaf þar. Veskú.
♦ Photo Friday. Long time, no photo Friday… Because I’ve been busy with book art exhibition and stuff, I am posting two manipulated photos from my sentimental little book item from the exhibition, called: Í draumum mínum er ég alltaf þar – In my dreams I’m always there. See you at the Nordic house!
HEIMA – veggspjald | HOME – poster
♦ Grafísk hönnun. Veggspjöldin með stafaruglinu: B Ó K V E R K, voru hönnuð fyrir sýninguna HEIMA eða hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik í Norræna húsinu 2014. Fyrir neðan eru tvær tillögur fyrir sama tilefni. Hönnun: Áslaug Jónsdóttir.
♦ Graphic design. Poster design for the exhibition HOME or, as in all the Scandinavian languages, hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik. In the Nordic house 2014. Below are two proposals. Design by Áslaug Jónsdóttir.
Heima – bókverkasýning | Home – book art exhibition
♦ Bókverk. Ég er ein af ÖRKUNUM, hópi listakvenna sem stunda bókverkagerð af ýmsum toga. ARKIR taka þátt í norrænni farandsýningu sem nú er komin til Íslands og verður opnuð í Norræna húsinu á morgun, laugardag kl. 16. Sýningin ber titillinn HEIMA eða hem : hjem : koti : heim : heima : angerlarsimafik, og var fyrst sett upp í Silkeborg á Jótlandi á síðasta ári en fór þaðan til Nuuk á Grænlandi. Hún verður aftur sett upp á Jótlandi og síðar í Kaupmannahöfn. Hér fyrir neðan eru myndir sem ég tók fyrir bloggvef ARKANNA.
♦ Book art. I have been busy working on graphics and exhibition design for the book art exhibition HOME, which opens in the Nordic house in Reykjavík tomorrow at 16. pm. This is a touring exhibition: It opened last year in Silkeborg in Denmark, for later to travel all the way to Nuuk in Greenland. Now in Iceland until February 23rd. It will travel back to Denmark and be on display in Copenhagen later this year. Below are some photos I took for my book arts group: ARKIR and our blog.
















































