Ljósmynd tekin | Photo date: 26.12.2017
Haustið er komið með svalar og stjörnubjartar nætur. Norðurljósin lokkuðu mig út eitt kvöldið í vikunni og ef ég hefði ekki verið plöguð af kvefpest hefði ég sjálfsagt hangið úti hálfa nóttina til að njóta þeirra og stjarnanna – og þá kannski náð betri tökum á því að mynda dýrðina. En það er svo hollt að horfa til himins, fylgjast með stjörnuhrapi, minnast þess að allt er breytingum háð og mannskepnan í mörgu svo smá …
Autumn is here in Iceland with chilly, starry nights. I think I have mentioned my passion for sky gazing and that goes for the night sky too. The northern lights were really nice this week so I tried my luck with the camera. Although I suffered from a bad cold I sneaked out and enjoyed the show. And I guess I would have stayed up half the night just admiring the stars and the dance of the auroras if not for the flu. The moon also peeked out from behind Mt. Skarðsheiði (below) and made scenery even more magical.

Ljósmyndir teknar | Photo date: 12.09.2017
Undir regnboganum! Vel þekkt teikn á himni eins og regnbogi geta verið hreint ótrúlega töfrandi. Hér er Melaleiti undir heilum og nær því tvöföldum regnboga. En skuggarnir eru orðnir æði langir á þessum tíma árs. Myndirnar hér neðar eru líka tileinkaðar skýjaglápi: Írskrabyrgi eða Malarbyrgi við Gufuskála; Fagraskógarfjall séð af Mýrunum og örn á flugi á sömu slóðum. Kannski eru blikur á himni en örn og regnbogi hljóta að vita á eitthvað magnað.
Photo Friday: The rainbow was just magical the other night and a second one was almost visible too. Our farm Melaleiti is just under the rainbow and my shadow showing half the way towards the house. (Time aprox. 20:30 or around sunset). My sky gazing also brought on the photos below from Sæfellsnes and Mýrar: Írskrabyrgi / Malarbyrgi – an old ruin at Gufuskálar; Mt. Fagraskógarfjall and a white-tailed eagle (Haliaeetus albicilla) hunting at Mýrar. Places full of stories. I bet that eagle could also tell some tales …
Ljósmyndir teknar | Photo date: 06.08 /.28.08.2017
♦ Áramót: Gleðilegt ár vinir á vefnum! Bestu þakkir fyrir innlit og heimsóknir á heimasíðuna, sem ég lít öðru fremur á sem upplýsinga- og minnistöflu: stundum er efnið fyrir sjálfa mig, stundum kann það að gagnast það öðrum.
Er ekki eitthvað dásamlega frelsandi við það að skrifa nýtt ártal? Ég sé ekki eftir árinu 2016, svo mikið er víst, og vonandi verður nýja árið farsælt.
Ég eyði áramótum í sveitinni og veit ekkert betra eftir ofát og hátíðahöld en að vafra út og horfa. Helst út í bláinn, en oft í gegnum ljósmyndalinsuna. Um áramót má svo horfa fram á veginn, um öxl og þar fram eftir götum. Ég sæki sem fyrr í fjöruna og þó allt sé þar gamalkunnugt, þá finnst mér einatt að ég sjái þar eitthvað nýtt. Svona er náttúran undursamlega blekkjandi.
♦ Happy New Year – to you all! May the new year 2017 bring us peace and happy moments in life. I can’t say I miss 2016 despite the many good memories.
To the readers of my blog: Thank you for visiting and checking out my digital memo board of miscellaneous stuff 🙂 I hope it may be an inspiration to some and of interest and information to others.
I shot these photos yesterday, the last day of the year 2016, at the family farm. (Except the one at the top). Winter sky, cold sea, frosty earth… I may have posted similar shots many times before, but somehow I feel I always see something new on my beach walks. This is the wonderful illusion of nature.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 31.12.2016 / 01.01.2017
♦ Föstudagsmyndir: Tíminn líður hratt, en ágúst finnst mér líða allra mánuða hraðast. Nætur verða óðum dimmari og eitt og annað minnir á haustið. Í dag, 19. ágúst, er alþjóðadagur mannúðar, en líka dagur ljósmyndarinnar. Þetta tvennt fer oft saman: ljósmyndirnar hreyfa við okkur, vekja samhygð, mildi og mannúð. Þess vegna er þessi frétt hér líka hræðileg. Það er auðvelt að fyllast lamandi depurð við fregnir af stjórnlausu ofbeldi og vanmætti alþjóðastofnana til að stöðva stríð og átök. En á meðan okkur stendur ekki algerlega á sama má kannski eygja vonarglætu. Fjölmargir ljósmyndarar hætta lífi sínu til að lýsa óréttlæti og átökum, en ég prísa mig sæla í friðsælli sveit með fjöllum, firði og fuglum.
♦ Photo Friday: Today is the World Humanitarian Day but also the World Photo Day. These two themes often go together: photographs move you to become involved, to express empathy and kindness. Therefore I find these news just horrible. I admire the photographers and humanitarians who risk their lives to tell us all these stories that make us care. At least as long as we don’t just give a damn, there is hope. Meanwhile I am the lucky photographer of peaceful landscape and the free flying birds like Sterna paradisaea.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 03.08. / 19.08.2016
♦ Föstudagsmyndir: Tún hafa verið slegin og heyjuð og hvítu rúllurnar hrannast upp eins og skýjabólstrar. Kannski minna þær þó öllu heldur á eitthvað sem hefur fallið af himnum ofan, ævinlega dálítið framandlegar í landslaginu.
♦ Photo Friday: Haymaking is done at the farm. The white bales of hay are common in the fields and at the farms all around Iceland. At times I find them looking like something out of space, odd and alien in the landscape, still possessing some strange beauty.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 31.07. / 02.08. / 03.08.2016
♦ Regnboginn: Síðustu daga hafa skúrir gengið á fjöllum og í gær buldu þrumur úr lofti. Fallegir regnbogar birtast svo á hverju kvöldi. En regnboganum verður örugglega flaggað í Reykjavík í dag. Njótið Gleðigöngunnar og hinsegin daga! Styðjum mannréttindabaráttuna og fögnum fjölbreytileikanum.
♦ Rainbow: Every evening the last days the rainbow has appeared after heavy rain showers in the mountains. I know the rainbow will be all over Reykjavík today and wish us all a merry Reykjavík Pride! Support and celebrate!
Ljósmyndir teknar | Photo date: 04 + 05.08.2016
♦ Föstudagsmyndin: Fjaran við Melabakka í dag. Og einn pirraður tjaldur.
♦ Friday Photo: The beach at Melaleiti farm. Steaming hot … 😉 And then one angry oystercatcher (Haematopus ostralegus).
Ljósmynd tekin | Photo date: 03.06.2016
♦ Föstudagsmyndin: Svona er vorið – dálítið svart-hvítt á stundum.
♦ Friday Photo: Black and white spring photo. Snowy Mt. Skarðsheiði and horses at Melaleiti farm.
Ljósmynd tekin | Photo date: 22.05.2016
♦ Föstudagsmyndir – Fjaran: Ég fæ aldrei nóg af fjörulalli. Aldrei. Allan ársins hring er ævinlega eitthvað nýtt að sjá. Himinn og haf, land og strönd: allt síkvikt og síbreytilegt, takmarkalaust nærandi umhverfi fyrir skilningarvitin.
♦ Photo Friday – Beach walking: I get endless inspiration from walking along the beach, and I never stop admiring all things small and beautiful. So I recommend: Go to a peaceful beach. Take a walk and use your senses. And have a wonderful weekend!
♦ Ljósmynd: Sumarnótt við Kaldalón. Í dag er haldið upp á Dag íslenskrar náttúru í fimmta sinn. Njótum. Stöndum vörð. Til hamingju með daginn.
♦ Photo: Kaldalón, Westfjords, Iceland, at midnight in July. Today we celebrate the Day of Icelandic Nature. Yes, let’s!
Ljósmynd tekin | Photo date: 25.07.2015 23:53 – at midnight
♦ Föstudagsmyndir: Það eru komin sumarlok og haust í nánd. Síðustu vikur hafa verið annasamar og heimsfréttirnar óbærilegar. Ég er höll undir heimspeki litla skrímslisins: til hressingar getur verið gott að horfa á eitthvað fallegt. (En nauðsynlegt að öskra NEI! af krafti þess á milli). Hér fyrir ofan kúra skarifíflar undir gömlum húsvegg. Á latnesku bera þeir heitið: Leontodon autumnale eða haustfífill, eða „haust-ljóns-tönn“. Fyrir neðan eru haustlitir í laufi af blóðkolli eða blóðdrekk (Sanguisorba officinalis) og ein stök mýrasóley (Parnassia palustris) innan um smjörlauf (grasvíðir: Salix herbacea) o.fl. Neðst er svo mynd sem gleður mitt hagamúsarhjarta: uppskera úr matjurtagarði á leið í eldhúsið.
♦ Photo Friday: This has been a busy week, and the world news have been horrifying. I feel angry and powerless. When things get to overwhelming I tend to go and stare at something I can adore without any obligations (true or not) –that is: nature. Then after a while I feel ready to go at it again. So I bring you plants and fruits of earth! At the top: the Fall dandelion (Leontodon autumnale) under the walls of our old farmhouse; below: colors of autumn in a leaf of a Great burnet (Sanguisorba officinalis) and a sole Bog star (Parnassia palustris) amongst Dwarf willow (Salix herbacea) and more. At the bottom: veggies from our gardens, on the way into the kitchen. I feel very lucky and privileged.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 31.08. / 21.08. / 17.08.2015
♦ Föstudagsmyndin: Ég hef verið að hugsa um hve hratt tíminn líður. Og að ég hafi ekki gefið mér nógu mikinn tíma til þess að liggja í grasinu og horfa á skýin. Eða bara góna út í bláinn … Hvað um að pæla í Kepler 452b, til dæmis?
♦ Photo Friday: I’ve been thinking about time. It sure flies. And I think I have not spent enough time just layin’ in the grass and watching the clouds go by. Or just spacing out …yes, how about giving Kepler 452b a little thought? Is anybody out there?
Ljósmynd | Photo: Vilhjálmur Svansson. Tekin | Date: 22.07.2015
♦ Föstudagsmyndin: Dagur að kveldi kominn. Horft til himins og hugsað til frænda.
♦ Photo Friday: I have been busy with all sorts of projects and I have neglected my blog. But I will try to make amends soon!
I took this photo this evening, when I had been staring out of the window too long. Today I had to say goodbye to a young man in my family. A sad day.
♦ Föstudagsmyndin: Þessi krummi tók á móti mér þegar ég kom heim í dag, en reyndi hvað hann gat til að hrella fastagestina á Melhaganum: starra og skógarþresti. Aðeins einn aumkunarverður starri reyndi að verja heiður götunnar og sat sem fastast á sínum pósti.
Ég hef verið að kenna nemendum í teiknideild Myndlistaskólans í Reykjavík sitthvað um letur og mynd og þess vegna settist krumminn á „K“ þegar ég fór að fikta við það sem festist á filmuna.
♦ Photo Friday: I met this raven when I came home today. It was terrorising the regular guests in our street: starlings (Sturnus vulgaris) and redwings (Turdus iliacus) with loud croaking and various odd sounds. Only one not-so-brave-looking starling stayed behind to defend the territory. Ravens (Corvus corax) are getting more and more common in Reykjavík, I guess some people like to feed them.
It has been a busy week where I also was teaching students in the department of illustration in The Reykjavík School of Visual Arts a bit about typography, images and letters. So therefore my raven – hrafn or krummi sat himself on the letter K.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 06.03.2015
♦ Föstudagsmyndin: Gleðilegan Bóndadag! Það er frost á Fróni og Þorri genginn í garð. Hó hó hó.
Myndirnar voru teknar á Þorra 2009.
♦ Photo Friday: Happy Farmer’s Day! May the month of Þorri be kind to us all.
Þingvellir, Öxará. Ljósmynd tekin | Photo date: 30.01.2009
♦ Föstudagsmyndir! Kaldir og klárir litir á nýju ári: hvítt, svart, blátt og grátt í ótal tónum. Það er smekklegt, þetta nýja ár.
♦ Photo Friday! Snowy days at the farm, crisp and refreshing. The color palette may seem simple, with the black beach and the white mountains, but the shades are endless in the scarce daylight.

Árið í fjörunni: 2015 – in all natural “crayons” from the beach!
Ljósmyndir teknar | Photo date: 01/02.01.2015
♦ Föstudagsmyndin: Á morgun opnar í Norræna húsinu sýningin Páfugl úti í mýri – Orðaævintýri. Sýningin er hluti af Mýrinni, alþjóðlegu barnabókmenntahátíðinni sem haldin er á tveggja ára fresti í Norræna húsinu, – og Lestrarhátíð í Bókmenntaborg 2014. Sýningarstjórar eru þau Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Davíð Stefánsson. Ég kíkti í Norræna húsið um daginn, þegar undirbúningur stóð sem hæst, stóð hreinlega á gægjum! Fleiri myndir má sjá hér. Ég mæli eindregið með skemmtilegri sýningu fyrir alla fjölskylduna!
♦ Photo Friday: Tomorrow there will be an opening of an exhibition in the Nordic house in Reykjavík, called: A Peacock in the Moor – A Fairy-tale of Words. The exhibition is inspired by a selection of new Nordic children’s books and is dedicated to the joy of reading and playing with words. It is a part of the International Children’s Literature Festival Mýrin, a biennial hold in the Nordic House in Reykjavík, – and Reykjavík Reads Festival 2014. The exhibition is designed by graphic artist Kristín Ragna Gunnarsdóttir and author Davíð Stefánsson. I went to the Nordic house last week and and took a peek through a magic hole in the wall! More photos here. Check out the links in this post if you want to know more!
♦ Föstudagsmyndin: Ég gekk fram á þennan ófrýnilegan bergrisa í sumar. Hann svaf og gætti ekki að: steinhjartað lá bert í opnu brjóstinu. Það má ekki vekja bergrisana …
♦ Photo Friday: I walked past a mountain-giant this summer. He was sleeping and a bit careless, leaving his heart of stone just laying there bare. I guess I could have stolen his heart but I didn’t. Giants are not to be awakened…
♦ Föstudagsmyndin: Þessir graðhestar í Húnavatnssýslu tóku sig vel út í fallegu veðri í síðustu viku. Myndirnar voru teknar fyrir vefsíðuna Viljahestar sem spúsi minn heldur úti.
♦ Photo Friday: Stallions at play! I do some photographing for the website Viljahestar, a site for the horsebreeding at the family farm, run by my husband. Interested in the Icelandic horse? Go take a look!
Ljósmyndir teknar | Photo date: 27.08.2014 
♦ Föstudagsmyndin: Dalalæðan fór víða í gærkvöldi og haustið er svo greinilega í nánd. Fyrr um daginn var ég á Hofsósi og naut blíðunnar í Skagafirði.
♦ Photo Friday: Above: foggy evening at the farm yesterday. Below: Earlier in the day I was in Hofsós, Skagafjörður, enjoying beautiful weather: calm, warm and sunny.

Ljósmyndir teknar | Photo date: 28.08.2014
♦ Dagatalið: Jónsmessunóttin 2014, 24. júní kl 1:05. Ég missti reyndar af hinu rómaða daggar-baði, því döggin vék fyrir vindi og skýin hrönnuðust upp með tilheyrandi svala. Ég hefði betur drifið í því nóttina áður, því þá sat döggin á hverju strái. En í tilefni dagsins tíndi ég til myndir af sjö af mínum uppáhalds blómplöntum. Gleðilega Jónsmessu!
♦ The Calendar: Photos from June 24. at 1:05 am. It’s Midsummer – Jónsmessa – and last night was the magical Midsummer night. I didn’t get the chance to bathe in the early-morning dew, which is supposed to be a very healthy thing to do on that night. I should have picked the night before … just see the photo below. But since herbs and flowers also have an extra magical healing power this night, I picked out seven of my favorite wild flowers and I hope they bring forth my wishes for a happy midsummer everywhere!
♦ Fyrir neðan: 23. júní kl. 5:27. Sólin í norðaustri, hátt yfir Skarðsheiði.
♦Below: Early morning June 23. at 5:27 am. The morning sun above Skarðsheiði, Mt. Ölver.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 23.-24.06.2014 +undated flower photography
♦ Föstudagsmyndir: Rauðir fætur og reiðir fuglar! Einhversstaðar kúrðu ungar í grasinu og tjaldurinn varði þá með miklum látum. Stelkurinn var öllu ljúfari en hávaðasamur líka og ég fékk húðskammir fyrir átroðninginn. Loftið ómar af fuglasöng nætur og daga, en hvell hættumerki frá stelk og tjaldi eru reyndar ekkert eyrnakonfekt.
♦ Photo Friday: Angry birds! The oystercatcher (Haematopus ostralegus) and the redshank (Tringa totanus) both had young chicks hidden in the grass and gave me a thorough scolding for intruding.
(Smellið á myndirnar til að stækka | Click on the images to enlarge).
Ljósmyndir teknar | Photo dates: 10.-11.06.2014
♦ Dagatalið: Í tilefni dagsins: Ég flaggaði auðvitað þótt ég kæmist ekki á Austurvöll til að fylgjast með forseta og forsætisráðherra … hipp húrra! Í fánastöng við hæfi! Annars eyddi ég megninu af deginum niðurrignd í rófugarðinum. Það var afar þjóðlegt. Og það ku hafa rignt ámóta fyrir 70 árum.
♦ The Calendar: Today was the National Day of Iceland, with celebrations of the 70th Independence Day. Of course I had to fly the flag! The weather was typical for the day: with pouring rain, and I spent most of it fighting dandelions in the vegetable garden. Very appropriate.
Ljósmynd tekin | Photo date: 17.06.2014
♦ Föstudagsmyndir: Það er erfitt að standast svona augnaráð! Þegar saman fer bjartasti tími ársins og nýfætt ungviði, eru það tröll ein, sem ekki kætast.
♦ Photo Friday: It’s hard to resist the charm and beauty of the newborn foals at the family farm in Melaleiti. Bright nights and all is well … it has to bring out a smile!
(Smellið á myndirnar til að stækka | Click on the images to enlarge).
Ljósmyndir teknar | Photo dates: 10.-11.06.2014
♦ Ljósmyndir: Þrátt fyrir páskahretið syngur í mó. Farfuglarnir komu með sunnanáttinni og ég stóðst ekki mátið, skaut á þá með linsunni og taldi tegundir. Veit reyndar aldrei hvort ég greini ýmsar mávategundir rétt. Einn hefur fuglinn auðvitað verið hér í allan vetur: krummi svarti. Skógarþröstur, hrossagaukur og þúfutittlingur vildu ekki sitja fyrir á mynd, en létu í sér heyra.
♦ Photos: A solo raven is often the only bird you see in the winter near our farm. But now the migratory birds are enlivening the era with song and busy flights, even though the weather this Easter was extremely bad. Happy to see all the newcomers I went out with my camera and caught a few.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 19.-21.04.2014
♦ Föstudagsmyndir: Dyrnar í gömlu Tallinn eru víða áberandi fallegar og nostursamlega málaðar í mismunandi litum. Hér er bara lítið sýnishorn. Fleiri myndir frá Tallinn hér í fyrri pósti.
♦ Photo Friday: I guess the colorful and fine-looking doors of old Tallinn have been photographed as often as an Icelandic geysir … But for me this is a memento of the nice walks I had around the city in early April.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 03-05.04.2014