♦ Föstudagsmyndin: Flugdreki á lofti í sumarblíðu í Fljótshlíð.
♦ Photo Friday: Time for play! Flying a kite in Fljótshlíð, South Iceland.
Ljósmynd tekin | Photo date: 27.07.2016
♦ Föstudagsmyndir: Það jafnast ekkert á við þessa blöndu: ilm af nýslegnu grasi og fersku sjávarlofti. (Um loftgæði í Melasveit mætti annars margt rita). Skýjabólstrar skreyttu svo loftin í gær – eins og yfir Skarðsheiði hér fyrir neðan.
♦ Photo Friday: The most important task in conventional farming in Iceland is still the haymaking during the summer months. I just love the smell of the newly cut grass mixed with fresh air from the sea!
Below: clouds over Skarðsheiði Mt Range: Mt. Hafnarfjall and Mt. Ölver.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 30.06.2016
♦ Föstudagsmyndir – 17. júní: Ég var að rifja upp pappírsbátabrot og flaggaði í tilefni dagsins. Og svo hitti ég þessa iðnu Máríuerlu sem er á myndinni hér fyrir neðan, en hún ætlaði greinilega að færa ungunum sínum feita randaflugu. Gleðilega hátíð!
♦ Friday Photo – The Icelandic National Day: I was trying out my skills of paper-boat making – and of course I used the small flags to celebrate the day. Below: on my walk today I met this busy white wagtail (Motacilla alba) heading it’s way to the nest with a fat and juicy fly.
♦ Föstudagsmyndin: Fjaran við Melabakka í dag. Og einn pirraður tjaldur.
♦ Friday Photo: The beach at Melaleiti farm. Steaming hot … 😉 And then one angry oystercatcher (Haematopus ostralegus).
Ljósmynd tekin | Photo date: 03.06.2016
♦ Föstudagsmyndin: Svona er vorið – dálítið svart-hvítt á stundum.
♦ Friday Photo: Black and white spring photo. Snowy Mt. Skarðsheiði and horses at Melaleiti farm.
Ljósmynd tekin | Photo date: 22.05.2016
♦ Föstudagsmyndir – Fjaran: Ég fæ aldrei nóg af fjörulalli. Aldrei. Allan ársins hring er ævinlega eitthvað nýtt að sjá. Himinn og haf, land og strönd: allt síkvikt og síbreytilegt, takmarkalaust nærandi umhverfi fyrir skilningarvitin.
♦ Photo Friday – Beach walking: I get endless inspiration from walking along the beach, and I never stop admiring all things small and beautiful. So I recommend: Go to a peaceful beach. Take a walk and use your senses. And have a wonderful weekend!
♦ Föstudagsmyndir: Í byrjun apríl s.l. heimsótti ég Buenos Aires, borg hinna blíðu vinda, sem er margbrotin og mögnuð borg. Ljósmyndirnar segja ósköp einfaldar örsögur af því sem fyrir augu bar, þeim fylgja hvorki hljóð né lykt, og ys og þys stórborgarinnar er frystur í stillimynd. En þessi sjónarhorn verða að duga í bili.
♦ Photo Friday: I visited Buenos Aires in early April, in the beginning of the autumn, when it both rained and shined. This wonderful city made an unforgettable impression. My photos are not even half way there when it comes to discribe the city’s tempo and atmosphere: the friendliness and the craziness, the noisy hurly-burly and the quiet sadness … But they will have to do for now.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 01.-11.04.2016
♦ Dagur jarðar: Í dag er Dagur jarðar, dagur umhverfis og náttúruverndar. Það er komið að ögurstund fyrir jarðarbúa – þar með talda Íslendinga, þó við teljum okkur ævinlega vera í sérflokki. Náttúruvernd er sjálfsögð nauðsyn, en því miður þverskallast margir við að meðtaka þá staðreynd. Hér fyrir neðan er ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum, sem heitir Landráð, en það á einkar vel við okkar umbrotatíma. Ég vona líka að við berum gæfu til þess að velja forseta sem setur náttúruvernd á oddinn. Ég skrifa betur um það síðar.
♦ Earth Day: Today is Earth Day. I am enjoying first days of spring at our family farm, but I do worry about the future if environmental issues are not taken dead seriously in our country as well as in the whole world. Now, today and all times onward. For the occasion I chose a photo of the smallest plants of all: moss.
Below is a poem by Jóhannes úr Kötlum, (1899-1972) a favourite poet, teacher and reformer.
Landráð
Þú ert ekki Íslendingur!
æpa þeir að mér,
ef ég sára saklaust vitni
sannleikanum ber.
Ekki mega iljar mínar
íslenskt snerta grjót,
ef ég blekktum bróður mínum
bendi á svikin ljót.
Ekki má mitt auga skoða
íslenskt blóm í hlíð,
ef ég harma örbirgð vora,
ómenningu og stríð.
Ekki má mitt eyra hlusta
á íslenskt lindarhjal,
ef ég þrái að þekkja og boða
það, sem koma skal.
„Báran kveður eins og áður
út við fjörusand –
en ég á orðið einhvern veginn
ekkert föðurland“.
Ljósmynd tekin | Photo date: 22.05.2010
♦ Vorfuglar: Sumardagurinn fyrsti var hinn dægilegasti á suðvesturhorninu. Þessi „sælugaukur“ renndi sér um suðurloft og gladdi með sínum hlýlega fjaðraþyt. Farfuglarnir eru nú óðum að flykkjast til landsins. Múkkinn er sestur upp í Melabakka og skógarþrösturinn vill gjarnan halda sig nærri bænum. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn!
♦ Birds of spring: We celebrate the First Day of Summer in Iceland today. It may freeze and snow but so it is: the first Thursday after April 18th is the first day of the summer month Harpa, according to the Old Norse calendar. Today many signs are to be read as omens for good or bad summer. It’s a very good thing to hear the sound of Hrossagaukur, – the Common Snipe (Gallinago gallinago), in the south – and up above, and I was just so lucky at our farm today! Many migratory birds are here now, among them Fýll – Fulmar (Fulmarus glacialis) and skógarþröstur – Redwing (Turdus iliacus) as portrayed on the photos below. Happy summer to ya’ all!
Ljósmyndir teknar | Photo date: 21.04.2016
♦ Föstudagsmyndir: Í febrúar er náttúran og lífríkið enn í vetrarham: dagarnir eru gráir og kaldir, fátt sýnist lifandi. Það er samt alltaf eitthvað að gerast við ströndina, í fjörunni og hafinu. Þessar myndir eru frá göngu undir Melabökkum við Melaleiti í gær.
Haförn (Haliaeetus albicilla): Ég var að vaða grynningar við Kotatanga þegar ég sá haförninn í fjarska. Gæsir, endur, mávar og hrafnar létu auðvitað strax vita með krunki og kvaki. Ég var því miður ekki með sterka aðdráttarlinsu en ákvað að krjúpa niður ef örninn fengi þá áhuga á að skoða það sem lægi í fjöruborðinu, því eins og aðrir fuglar forðast ernir tvífætlinga. Örninn flaug fremur lágt yfir öldufallinu en beygði svo af leið og tók stefnuna á bráðina: mig! Sveif hátt og hringsólaði með þungum vængjatökum. Magnaður fugl. Sumpart var ég fegin að hann sá í gegnum þennan leik minn þó ég hefði verið til í nærmynd.
♦ Photo Friday: On a grey and gloomy day, at this is the time of year, you might think nature is in it’s dullest mood and that there is nothing noteworthy to see. But walk along the seashore always proofs that wrong. Yesterday my wander led to these photos.
White-tailed eagle (Haliaeetus albicilla): Just to spot a sea eagle is always exciting. So huge! So majestic! Although I didn’t have my best lens for the occasion I managed to get some photos. I was wading the shallows when I saw the big bird in the far, causing a stir amongst geese, ducks, seagulls and ravens. Not happy to be without a good zoom lens I decided to kneel down or cringe if that could make the eagle interested in me – if I looked more like a seal in trouble than I human being I might get to see it closer. And I did. Instead of flying over the breaking waves it took a turn and hovered over me for a while. Like most of the eagles in Iceland it is ringed but I couldn’t tell the number on the black (blue?) rings.
(I don’t post high-resolution photos on my blog so these will have to do.)
Landbrot við Melabakka er mikið, með ört vaxandi ágangi sjávar. Hér fyrir neðan eru myndir af hruni í bakkanum í gær.
The coastal erosion at Melabakkar Cliffs has been speeding up last years (50-100 cm / 20-40 inches pr year). With sea levels rising the porous cliffs are easily crumbled and swept away. See photo series below where I witnessed a big “chunk” fall down. Cliff height: 20-30 m.
Litir og munstur í fjörunni: | Colors and patterns at the beach:
Ljósmyndir teknar | Photo date: 25.02.2016
♦ Föstudagsmyndir: Góðir dagar í sveitinni! Snæfellsjökull sýndi enga hógværð í byrjun ársins og hillti uppi yfir köldum sjónum. Þessa fyrstu daga ársins hefur hlánað og snjóað á víxl. Óneitanlega nýtist takmarkað sólarljósið betur ef það endurkastast af hvítri jörð. Og linsan mín er mun samvinnuþýðari þá daga.
♦ Photo Friday: It looked as if Snæfellsjökull / Snæfell Glacier on Snæfellsnes peninsula had changed size and shape as the weather changed one of the first days in January. Above the cold sea the temperature was slightly higher, making the mountains fly – a phenomenon called superior mirage. And fly does our young stallion in training and fly did the wool-blanket on the clothesline. We have enjoyed fine winter days at the farm.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 02 – 05.01.2016
♦ Áramót 2015-2016! Kæru vinir nær og fjær; bestu þakkir fyrir skemmtileg samskipti og samvinnu á árinu sem er að líða. Kærar þakkir fyrir allar heimsóknir á vefinn! Með myndum frá Melaleiti óska ég ykkur gleðilegs árs, friðar og farsældar á nýju ári. Finnst ykkur kannski vanta púður í þessar myndir? Hér er himinninn laus við litaglaða skotelda. Manneskjan er lítil gagnvart náttúrunni og víst að við eigum þar við ofuröfl að etja. Jafnvel venjuleg vetrarveður á norðurslóðum minna okkur á það. Hvað þá þegar öfgar verða að venju og þekktar stærðir og staðreyndir gamlar minningar. Aðeins með því að stunda auðmýkt í umgengni okkar við náttúru og jörð getum við lifað af í breyttum heimi og sýnt raunverulega snilli og gáfur. Það væri óskandi að við gætum haft örlítið meira vit fyrir okkur á komandi ári. Megi jarðarbúum öllum búnast vel á nýja árinu.
♦ At New Year 2015-2016! Dear friends, near and far, thank you for all the joyful gatherings and meetings, inspiring collaborations and friendship, – and thank you for the many visits to this website in the year 2015. I am truly grateful for your interest. With these photos from the family farm at Melaleiti I wish you a very happy New Year 2016. These images do not picture the blissful excitements of the fireworks on New Year’s Eve, but are pretty descriptive for the mood at the countryside, where I plan to spend the evening. We are so small against Nature’s tremendous powers. Only by practicing humility and humbleness towards Nature’s forces we show true intelligence and mastery. I wish you all peace, wisdom and happiness!
Ljósmyndir teknar | Photo date: 28.12.2015

♦ Föstudagsmyndin: Reykjavík skipti um ham í nótt og í morgun gafst á að líta: tunglið skein bjart yfir snæviþakta borgina sem er að komast í sparibúning á jólaföstu. Þennan búralega þröst hitti ég í Hólavallakirkjugarði. Hann var þar að gæða sér á síðustu reyniberjunum. Mjöllin hékk á hverri grein – nema þar sem þrösturinn og félagar hans flögruðu um og slitu ber af greinum með tilþrifum.
♦ Photo Friday: It was a lovely white Friday in Reykjavík today. It had snowed heavily last night and the city changed mood. This red wing was feasting on the last rowan berries in the old cemetery.
(Síðasta færsla hér á vefsíðunni var fyrir mánuði síðan! Ég verð að herða mig í tíðindaskrifunum … Meira síðar!)
(I wrote my last blog post a month ago! That’s no good … I’ll be back with news soon!)
♦ Ljósmynd: Sumarnótt við Kaldalón. Í dag er haldið upp á Dag íslenskrar náttúru í fimmta sinn. Njótum. Stöndum vörð. Til hamingju með daginn.
♦ Photo: Kaldalón, Westfjords, Iceland, at midnight in July. Today we celebrate the Day of Icelandic Nature. Yes, let’s!
Ljósmynd tekin | Photo date: 25.07.2015 23:53 – at midnight
♦ Föstudagsmyndir: Það eru komin sumarlok og haust í nánd. Síðustu vikur hafa verið annasamar og heimsfréttirnar óbærilegar. Ég er höll undir heimspeki litla skrímslisins: til hressingar getur verið gott að horfa á eitthvað fallegt. (En nauðsynlegt að öskra NEI! af krafti þess á milli). Hér fyrir ofan kúra skarifíflar undir gömlum húsvegg. Á latnesku bera þeir heitið: Leontodon autumnale eða haustfífill, eða „haust-ljóns-tönn“. Fyrir neðan eru haustlitir í laufi af blóðkolli eða blóðdrekk (Sanguisorba officinalis) og ein stök mýrasóley (Parnassia palustris) innan um smjörlauf (grasvíðir: Salix herbacea) o.fl. Neðst er svo mynd sem gleður mitt hagamúsarhjarta: uppskera úr matjurtagarði á leið í eldhúsið.
♦ Photo Friday: This has been a busy week, and the world news have been horrifying. I feel angry and powerless. When things get to overwhelming I tend to go and stare at something I can adore without any obligations (true or not) –that is: nature. Then after a while I feel ready to go at it again. So I bring you plants and fruits of earth! At the top: the Fall dandelion (Leontodon autumnale) under the walls of our old farmhouse; below: colors of autumn in a leaf of a Great burnet (Sanguisorba officinalis) and a sole Bog star (Parnassia palustris) amongst Dwarf willow (Salix herbacea) and more. At the bottom: veggies from our gardens, on the way into the kitchen. I feel very lucky and privileged.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 31.08. / 21.08. / 17.08.2015
♦ Föstudagsmyndir: Það er af svo firna mörgu að taka þegar lofa skal Strandirnar með ljósmyndum. Ég ætla að nefna Bjarnarfjörð í þetta sinn. Ég gisti á Hótel Laugarhóli, hvar sængurfötin ilma af sól og laugarvatnið er laust við eitur; þar gengur klukkan hægar og ferðamannastraumurinn er mátulegur, rétt eins og hitinn í Gvendarlaug hins góða; og maturinn (sem er ferskur og ljúffengur) og tónlistin í matsalnum (sem skiptir miklu máli!) gerir mann einfaldlega hamingjusamari. Takk fyrir mig.
Og svo fékk ég að sjá undrið: ávextina sem vaxa þar á Ströndum norður. Ef ég hef það rétt eftir, þá leiddist ungum bóndasyni í Bjarnarfirði að horfa á gamalt loðdýrabú grotna niður á býli í nágrenninu, en þess háttar skemmur hefur mátt finna víða um land eftir hörmulegar tilraunir til verksmiðjubúskapar. Bóndasonurinn fékk að rífa skemmuna. Hann sagaði niður steyptan grunninn og reif sundur grindina. Flutti allt til síns heima og raðaði upp á nýjan leik. Klæddi grindina gróðurhúsaplasti og hóf að gróðursetja og rækta matjurtir, ávaxtatré og -runna. Þar sem loðdýrin hefðu ella hringsnúist kveinandi, glóa nú aldin af ýmsum toga. Ja, hvað segið þið þá?
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
♦ Photo Friday: I spent a day in Bjarnarfjörður in July, staying at Laugarhóll Hotel, a place I highly recommend for lovers of bird life, hot baths, good food, relaxed atmosphere, beautiful nature, great hosts and service.
And then there was this extra surprise: I good friend gave us a tour to a neighbour farm where I found an oasis of fruit trees and berry bushes: a green house rebuilt from a former mink/fox house. What a pleasant sight! And how right this course of things seemed, from the saddest “farming” of all, to the most beguiling one!
Ljósmyndir teknar | Photo date: 27.07.2015
♦ Föstudagsmyndin: Ég hef verið að hugsa um hve hratt tíminn líður. Og að ég hafi ekki gefið mér nógu mikinn tíma til þess að liggja í grasinu og horfa á skýin. Eða bara góna út í bláinn … Hvað um að pæla í Kepler 452b, til dæmis?
♦ Photo Friday: I’ve been thinking about time. It sure flies. And I think I have not spent enough time just layin’ in the grass and watching the clouds go by. Or just spacing out …yes, how about giving Kepler 452b a little thought? Is anybody out there?
Ljósmynd | Photo: Vilhjálmur Svansson. Tekin | Date: 22.07.2015
♦ Fjaran og fjöllin: Þrátt fyrir annir má ekki gleyma því að slæpast úti í náttúrunni. Rápa, horfa, hlusta. Hér bar fyrir augu Blálilju (Mertensia maritima) í fjörunni í Melaleiti. Og Snæfellsjökull er ævinlega jafn heillandi, sama hvernig á hann er litið. Ég tel víst að skarfurinn sem sat úti í Kotatanga sé sama sinnis.
♦ The mountains and the seashore: A stroll along the beach is always good for refreshing the mind and nourishing the soul. Especially at busy times. I enjoy this immensely at our farm Melaleiti. Above is Blálilja (Mertensia maritima) – Oysterleaf or Sea bluebells with Skarðsheiði mountain range in the back. Below Snæfellsjökull glacier pictured over Kotatangi skerry with a sole cormorant (Phalacrocorax carbo).

Ljósmyndir teknar | Photo date: 05.07.2015
♦ Föstudagsmyndin: Dagur að kveldi kominn. Horft til himins og hugsað til frænda.
♦ Photo Friday: I have been busy with all sorts of projects and I have neglected my blog. But I will try to make amends soon!
I took this photo this evening, when I had been staring out of the window too long. Today I had to say goodbye to a young man in my family. A sad day.
♦ Föstudagsmyndir: Eins og lesendur síðunnar minnar ugglaust vita, þá er ég haldin þeirri áráttu að taka myndir af fuglum. Næst á listanum yfir vinsælt myndefni úr dýraríkinu eru hross, en það kemur reyndar til af mun praktískari ástæðum. Myndirnar af folöldunum hér fyrir neðan tók ég fyrir Viljahesta – sem er hrossarækt eiginmannsins.
Fálkinn hér fyrir ofan virtist heldur tætingslegur. Reyndar grunar mig að hann sé bæklaður á vinstra fæti, sem hann tyllti ekki í, þar sem hann sat um stund á staur og fylgdist með múkkanum í Melabökkunum.
♦ Photo Friday: Readers of my blog know that I am an avid photographer of birds although my photos do not come anywhere close to the quality the professional bird photography you see all around. Still, I can’t help myself.
Above is a ruffled gyrfalcon (Falco rusticolus islandicus) that rested for a while on fence pole, looking over the sea and the cliffs where the arctic fulmars (Fulmarus glacialis) are nesting. I think the falcon might have hurt his left leg, as he kept it curled up when he sat down – and not quite in control when flying. This could explain the tattered, hungry look.
And then there are the horses, that I photograph a lot. Although my intentions there are far more practical. The photos below were taken for the site Viljahestar, portraying my husbands horse breeding, at the family farm Melaleiti.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Fleiri folöld og hross á Viljahestar.com | For more foals and horses see: Viljahestar.com
♦ Föstudagsmyndir: Danshópurinn BANDALOOP framdi opnunarverk Listahátíðar í Reykjavík 2015. Í kalsaveðri svifu dansarar fram og aftur og upp og niður veggi gömlu Morgunblaðshallarinnar í Aðalstræti.
♦ Photo Friday: Reykjavík Arts Festival 2015 started last week. The opening performance was a “perspective-bending“ dance act by BANDALOOP, who despite the cold swayed and swung most elegantly up and down the walls of Aðalstræti 6.
♦ Föstudagsmyndin: Fallegur fyrsti maí. Á Seltjarnarnesi hitti ég fyrir fallega fargesti: margæsahóp (Branta bernicla hrota) og eina staka tildru (Arenaria interpres).
♦ Photo Friday: It was a beautiful day, the first of May. I was busy at my desk all day but took a short stroll at Seltjarnarnes. I met this solo ruddy turnstone (Arenaria interpres) and a flock of brent geese (Branta bernicla hrota), stopping over on their way further north for the summer.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 01.05.2015
♦ Fugl dagsins: Lóur kvökuðu í kuldanum á Melhaganum í dag. Það var frost og fjúk í lofti og værukærir Vesturbæjarkettir kúrðu inni, sem betur fer. En annars eru felulitir lóunnar aðdáunarverðir, hæfa ákaflega vel í óræktargörðum og úthögum.
♦ Bird of the day: The bringer of spring, the European golden plover (Pluvialis apricaria) heiðlóa or lóa, is here. Three of them var calling in my garden today. There is hardly any other sign of spring, it is bitter cold and snow in the air. The grass has still not turned green so the plover’s camouflage colors are perfect. But stay alert lóa, beware of the cats!
Ljósmynd tekin | Photo date: 26.04.2015
♦ Föstudagsmyndir – Litirnir í apríl: Gamlir skaflar hörfa nú sem óðast undan hækkandi sól. Í skamma stund skilja þeir eftir sig mynstur og liti sem úr má lesa átök veðra og vinda. Eins og fyrir töfra lifnar svörðurinn við og allt verður grænt fyrr en varir … Eða hvað? Enn snjóar. Svo mikið er víst að „hlýnandi loftslag“ á heimsvísu er langt í frá „spennandi“, svo vitnað sé í sturlaðran stjórnmálaflokk. Þetta þekkingarleysi og vanmat á náttúruöflunum hrollvekjandi og hættulegt.
♦ Friday Photo – Colors of April: In Iceland, the colors of spring are neighter green nor any light and bright colors of early spring flowers. This is the season where white turns brown and grey and yellow – only during the short summer we enjoy the many colors of green. Melting snow leaves all kind of odd patterns of dirt on the ground. But only for a short while, soon rain and wind has washed it all away.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 04/05.04.2015
♦ Föstudagsmyndir: Föstudagurinn langi við Borgarfjörð. Fýllinn kominn, með sultardropa á nefi.
♦ Photo Friday: I spent Good Friday at the family farm – close to Borgarfjord / Faxaflói bay. The Northern Fulmar or Arctic Fulmar (Fulmarus glacialis), is already back. Spring is near.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 03.04.2015
♦ Föstudagsmyndin: Það var róleg og dálítið dularfull stemning í borginni í morgun. Almyrkvi á sólu var í dag, 20. mars 2015. Sólmyrkvinn hófst kl. 8:38, náði hámarki kl. 9:37 og lauk kl. 10:39. Myndin er tekin kl. 10:10 úti á Seltjarnarnesi.
Hvar sem farið var um borgina stóð fólk úti í blíðviðrinu og horfði til himins. Góður dagur til að minnast þess að við erum geimverur!
Næsti sólmyrkvi verður 12. ágúst 2026. Um sólmyrkvann í dag má til dæmis lesa á Stjörnufræðivefnum.
♦ Photo Friday: My, my, what a nice morning: solar eclipse in an absolutely wonderful weather! The pleasant weather alone was something to celebrate, after weeks and months of horrid blizzards. (And next storm coming in tonight). The photo above was taken at 10:10 am – where the moon’s position was about like that one on the image to the right.
The atmosphere in the city was a bit odd, but definitely nice: calm and quiet and everyone out in the streets to stare at the sky, wearing crazy-looking glasses and clearly amusing themselves. We’ll have to wait 11 years for this to happen in Reykjavík again.
– Bewildered goose during solar eclipse, close to Grótta, Seltjarnarnes.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 20.03.2015
♦ Föstudagsmyndin: Þessi krummi tók á móti mér þegar ég kom heim í dag, en reyndi hvað hann gat til að hrella fastagestina á Melhaganum: starra og skógarþresti. Aðeins einn aumkunarverður starri reyndi að verja heiður götunnar og sat sem fastast á sínum pósti.
Ég hef verið að kenna nemendum í teiknideild Myndlistaskólans í Reykjavík sitthvað um letur og mynd og þess vegna settist krumminn á „K“ þegar ég fór að fikta við það sem festist á filmuna.
♦ Photo Friday: I met this raven when I came home today. It was terrorising the regular guests in our street: starlings (Sturnus vulgaris) and redwings (Turdus iliacus) with loud croaking and various odd sounds. Only one not-so-brave-looking starling stayed behind to defend the territory. Ravens (Corvus corax) are getting more and more common in Reykjavík, I guess some people like to feed them.
It has been a busy week where I also was teaching students in the department of illustration in The Reykjavík School of Visual Arts a bit about typography, images and letters. So therefore my raven – hrafn or krummi sat himself on the letter K.
Ljósmyndir teknar | Photo date: 06.03.2015