Dansað á veggjum | Dancing on walls

BANDALOOP2015-1-AslaugJ

♦ Föstudagsmyndir: Danshópurinn BANDALOOP framdi opnunarverk Listahátíðar í Reykjavík 2015. Í kalsaveðri svifu dansarar fram og aftur og upp og niður veggi gömlu Morgunblaðshallarinnar í Aðalstræti.

♦ Photo Friday: Reykjavík Arts Festival 2015 started last week. The opening performance was a “perspective-bending“ dance act by BANDALOOP, who despite the cold swayed and swung most elegantly up and down the walls of Aðalstræti 6.

BANDALOOP2015-3-AslaugJ

BANDALOOP2015-5-AslaugJ

BANDALOOP2015-4-AslaugJ

BANDALOOP2015-2-AslaugJ

Tildra og margæs | Ruddy turnstone and Brent goose

1maiKVil

♦ Föstudagsmyndin: Fallegur fyrsti maí. Á Seltjarnarnesi hitti ég fyrir fallega fargesti: margæsahóp (Branta bernicla hrota) og eina staka tildru (Arenaria interpres).

♦ Photo Friday: It was a beautiful day, the first of May. I was busy at my desk all day but took a short stroll at Seltjarnarnes. I met this solo ruddy turnstone (Arenaria interpres) and a flock of brent geese (Branta bernicla hrota), stopping over on their way further north for the summer.

Tildra©AslaugJ

Margæsir©AslaugJ

Ljósmyndir teknar | Photo date: 01.05.2015

Í felulitum | A golden plover in my garden

Lóa-26042015

♦ Fugl dagsins: Lóur kvökuðu í kuldanum á Melhaganum í dag. Það var frost og fjúk í lofti og værukærir Vesturbæjarkettir kúrðu inni, sem betur fer. En annars eru felulitir lóunnar aðdáunarverðir, hæfa ákaflega vel í óræktargörðum og úthögum.

♦ Bird of the day: The bringer of spring, the European golden plover (Pluvialis apricaria) heiðlóa or lóa, is here. Three of them var calling in my garden today. There is hardly any other sign of spring, it is bitter cold and snow in the air. The grass has still not turned green so the plover’s camouflage colors are perfect. But stay alert lóa, beware of the cats!

Ljósmynd tekin | Photo date: 26.04.2015

Vorlitirnir | Colors of spring 2015

Páskalitir-1

♦ Föstudagsmyndir – Litirnir í apríl: Gamlir skaflar hörfa nú sem óðast undan hækkandi sól. Í skamma stund skilja þeir eftir sig mynstur og liti sem úr má lesa átök veðra og vinda. Eins og fyrir töfra lifnar svörðurinn við og allt verður grænt fyrr en varir … Eða hvað? Enn snjóar. Svo mikið er víst að „hlýnandi loftslag“ á heimsvísu er langt í frá „spennandi“, svo vitnað sé í sturlaðran stjórnmálaflokk. Þetta þekkingarleysi og vanmat á náttúruöflunum hrollvekjandi og hættulegt.

♦ Friday Photo – Colors of April: In Iceland, the colors of spring are neighter green nor any light and bright colors of early spring flowers. This is the season where white turns brown and grey and yellow – only during the short summer we enjoy the many colors of green. Melting snow leaves all kind of odd patterns of dirt on the ground. But only for a short while, soon rain and wind has washed it all away.

Páskalitir-2 Páskalitir-3 Páskalitir-4 Páskalitir-5

Ljósmyndir teknar | Photo date: 04/05.04.2015

Föstudagurinn langi | Good Friday

3april-1

♦ Föstudagsmyndir: Föstudagurinn langi við Borgarfjörð. Fýllinn kominn, með sultardropa á nefi.

♦ Photo Friday: I spent Good Friday at the family farm – close to Borgarfjord / Faxaflói bay. The Northern Fulmar or Arctic Fulmar (Fulmarus glacialis), is already back. Spring is near.

3april-2 3april-3 3april-4 3april-5

Ljósmyndir teknar | Photo date: 03.04.2015

Sólmyrkvi | Solar Eclipse

Reykjavik20.03.2015.1010

♦ Föstudagsmyndin: Það var róleg og dálítið dularfull stemning í borginni í morgun. Almyrkvi á sólu var í dag, 20. mars 2015. Sólmyrkvinn hófst kl. 8:38, náði hámarki kl. 9:37 og lauk kl. 10:39. Myndin er tekin kl. 10:10 úti á Seltjarnarnesi.
Hvar sem farið var um borgina stóð fólk úti í blíðviðrinu og horfði til himins. Góður dagur til að minnast þess að við erum geimverur!
SolarE1010Næsti sólmyrkvi verður 12. ágúst 2026. Um sólmyrkvann í dag má til dæmis lesa á Stjörnufræðivefnum.

♦ Photo Friday: My, my, what a nice morning: solar eclipse in an absolutely wonderful weather! The pleasant weather alone was something to celebrate, after weeks and months of horrid blizzards. (And next storm coming in tonight). The photo above was taken at 10:10 am – where the moon’s position was about like that one on the image to the right.
The atmosphere in the city was a bit odd, but definitely nice: calm and quiet and everyone out in the streets to stare at the sky, wearing crazy-looking glasses and clearly amusing themselves. We’ll have to wait 11 years for this to happen in Reykjavík again.

Gæs-á-Gróttu-20.03.2015

– Bewildered goose during solar eclipse, close to Grótta, Seltjarnarnes. 

Ljósmyndir teknar | Photo date: 20.03.2015

Krúnk, krúnk | Corvus corax

Krummi6marsAslaugJ

♦ Föstudagsmyndin: Þessi krummi tók á móti mér þegar ég kom heim í dag, en reyndi hvað hann gat til að hrella fastagestina á Melhaganum: starra og skógarþresti. Aðeins einn aumkunarverður starri reyndi að verja heiður götunnar og sat sem fastast á sínum pósti.

KrummiKAslaugJÉg hef verið að kenna nemendum í teiknideild Myndlistaskólans í Reykjavík sitthvað um letur og mynd og þess vegna settist krumminn á „K“ þegar ég fór að fikta við það sem festist á filmuna.

♦ Photo Friday: I met this raven when I came home today. It was terrorising the regular guests in our street: starlings (Sturnus vulgaris) and redwings (Turdus iliacus) with loud croaking and various odd sounds. Only one not-so-brave-looking starling stayed behind to defend the territory. Ravens (Corvus corax) are getting more and more common in Reykjavík, I guess some people like to feed them.

It has been a busy week where I also was teaching students in the department of illustration in The Reykjavík School of Visual Arts a bit about typography, images and letters. So therefore my raven – hrafn or krummi sat himself on the letter K.

StarriBlackWhiteweb

Ljósmyndir teknar | Photo date: 06.03.2015

Refur á ferð | A (sad) story of a duck

RefurSpor

♦ Föstudagsmyndin. Veturinn hefur einkennst af grimmum veðrum og stundum er ótrúlegt að hugsa til þess að hér þrífist þrátt fyrir allt ýmsar dýrategundir – árið um kring. Ég var að skruna yfir ljósmyndir í dag og rakst þessi teikn í snjónum: spor eftir ref með æti. Refurinn hafði haft mikið fyrir því að drösla bráð sinni langa leið frá sjó, með krókum fyrir og í gegnum girðingar. Hann kaus að fara í gott skjól með fenginn. Við gamalt hesthús voru leifarnar af jólaöndinni hans rebba: haus af stokkandarstegg. Af merkjum að dæma fór rebbi inn í kofann með hluta af öndinni og gat þar étið í ró og næði, án þess að hrafnar eða ránfuglar trufluðu hann.
Það er ekki ólíklegt að stokkendurnar sem halda til við fjörur og lækjarósa haldi áfram að týna tölunni á meðan refurinn leikur sínum lausa hala.

StOnd-Refur1

♦ Photo Friday. I had a sick day and tried to humor myself by skimming through some photos, as an escape. No way I could go out in the cold today. I guess my pick of photos for this post is not very uplifting – or perhaps it is. Depends on the view. We found footprints of a fox (Arctic fox, Alopex lagopus) with a prey near our farm. The fox had draged its kill a long way from the sea, through and past fences and other obstacles, seemingly to feast undisturbed in an old stable where an open window came in handy. The fox had worked the poor duck apart, leaving its pretty green head half-covered in snow. The rest – if there was a rest – may have been well hidden somewhere inside the stable, away from ravens or vicious predatory birds. Clever thing, you fox.

The prey was a Mallard (Anas platyrhynchos), no doubt from a flock staying for winter by the creek. I can only admire these animals for their endurance during the long harsh winter. Of course only some survive.

Ljósmyndir teknar | Photo date: 27. / 30.12.2014 – 01.01.2015

Þorri – Bóndadagur | The fourth winter month

ÞingvellirJan2009-2-©AslaugJ

♦ Föstudagsmyndin: Gleðilegan Bóndadag! Það er frost á Fróni og Þorri genginn í garð. Hó hó hó.
Myndirnar voru teknar á Þorra 2009.
♦ Photo Friday: Happy Farmer’s Day! May the month of Þorri be kind to us all.

ÞingvellirJan2009-1-©AslaugJ

ÞingvellirJan2009-3-©AslaugJ

Þingvellir, Öxará. Ljósmynd tekin | Photo date: 30.01.2009

Himinn og hross | Winter sky

2014 26des Melaleiti

♦ Ljósmyndir: Sólin er enn lágt á lofti, en engu að síður getur verið gaman að fara út með myndavél. Hrossin í Melaleiti kunnu að meta hlé á umhleypingunum í lok desember. Fyrir áhugasama um hross eru fleiri myndir hér á Viljahestar.com.

♦ Photo days: I spent the holidays and New Year at the family farm, photographing horses and nature. For those interested in the Icelandic horse there are more photos and information at the site: Viljahestar.com.

2014-12-26-Uppljóstrun

Gleðilegt ár! | Happy New Year!

Melabakkar-19des2014-1

♦ Gleðilegt ár! Árið 2014 er senn á enda. Ég náði ekki ljósmynd af álftunum sjö sem flugu oddaflug fyrir glugga í dag. En ég ætla að telja þá sýn á síðasta degi ársins sem teikn um happ á nýju ári. Þar að auki segir í kvæðinu: „Á jóladaginn sjöunda / hann Jónas færði mér / sjö hvíta svani,…“ og svo framvegis. Takk Jónas! Ég fæ vonandi hjálp við „átta kýr með klöfum“ á morgun!
Með myndum af briminu og landbrotinu undir Melabökkum kveð ég árið og þakka allar heimsóknirnar á heimasíðuna. Lifið heil og gleðilegt ár!

♦ Farewell to 2014! I didn’t get a photo of the seven white swans that flew past my window today but I took it as a good omen for the new year, athough the swans were not swimming, as in: “On the seventh day of Christmas, / My true love gave to me, / Seven swans-a-swimming,… “ – and so forth. Flying is definitely better! But I still wonder if I should expect “Eight maids-a-milking” tomorrow… –?
With these photos from the seashore by our farm I wish you all the best in the year to come: Happy New Year 2015!
Melabakkar-19des2014-2

Ljósmyndir teknar | Photo date: 29.12.2014

Fugl dagsins er dvergkráka | Jackdaw – Corvus monedula

Dvergkráka©AslaugJons

♦ Ljósmyndin: Þessi dvergkráka (Corvus monedula) heimsótti Melhagann í morgun með miklu krákukrunki.
♦ Photo on a Sunday: A lone jackdaw (Corvus monedula) has been visiting the neighbourhood last days. Quite a chatter! Jackdaws are vagrants in Iceland and I had never seen one before in Reykjavík.

Ljósmynd tekin | Photo date: 02.11.2014

Gægjugat | Through the peephole

myrin2014-©AslaugJ

♦ Föstudagsmyndin: Á morgun opnar í Norræna húsinu sýningin Páfugl úti í mýri – Orðaævintýri. Sýningin er hluti af Mýrinni, alþjóðlegu barnabókmenntahátíðinni sem haldin er á tveggja ára fresti í Norræna húsinu, – og Lestrarhátíð í Bókmenntaborg 2014. Sýningarstjórar eru þau Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Davíð Stefánsson. Ég kíkti í Norræna húsið um daginn, þegar undirbúningur stóð sem hæst, stóð hreinlega á gægjum! Fleiri myndir má sjá hér. Ég mæli eindregið með skemmtilegri sýningu fyrir alla fjölskylduna!

Mýrin Festival Program

Dagskrá – Mýrin Festival Program

♦ Photo Friday: Tomorrow there will be an opening of an exhibition in the Nordic house in Reykjavík, called: A Peacock in the Moor – A Fairy-tale of Words. The exhibition is inspired by a selection of new Nordic children’s books and is dedicated to the joy of reading and playing with words. It is a part of the International Children’s Literature Festival Mýrin, a biennial hold in the Nordic House in Reykjavík, – and Reykjavík Reads Festival 2014. The exhibition is designed by graphic artist Kristín Ragna Gunnarsdóttir and author Davíð Stefánsson. I went to the Nordic house last week and and took a peek through a magic hole in the wall! More photos here. Check out the links in this post if you want to know more!

Hjarta bergrisans | Heart of stone

Bergrisi©AslaugJons

♦ Föstudagsmyndin: Ég gekk fram á þennan ófrýnilegan bergrisa í sumar. Hann svaf og gætti ekki að: steinhjartað lá bert í opnu brjóstinu. Það má ekki vekja bergrisana …
♦ Photo Friday: I walked past a mountain-giant this summer. He was sleeping and a bit careless, leaving his heart of stone just laying there bare. I guess I could have stolen his heart but I didn’t. Giants are not to be awakened…

Steinhjarta©AslaugJons

Graðhestar | Horsing around

Gregoríus-5-270814

♦ Föstudagsmyndin: Þessir graðhestar í Húnavatnssýslu tóku sig vel út í fallegu veðri í síðustu viku. Myndirnar voru teknar fyrir vefsíðuna Viljahestar sem spúsi minn heldur úti.

♦ Photo Friday: Stallions at play! I do some photographing for the website Viljahestar, a site for the horsebreeding at the family farm, run by my husband. Interested in the Icelandic horse? Go take a look!

Ljósmyndir teknar | Photo date: 27.08.2014 Gregoríus-7-270814

 

 

Þokan og ljósið | Fog and sun

Melaleiti-28082014

♦ Föstudagsmyndin: Dalalæðan fór víða í gærkvöldi og haustið er svo greinilega í nánd. Fyrr um daginn var ég á Hofsósi og naut blíðunnar í Skagafirði.

♦ Photo Friday: Above: foggy evening at the farm yesterday. Below: Earlier in the day I was in Hofsós, Skagafjörður, enjoying beautiful weather: calm, warm and sunny.
Hofsos-28082014

Ljósmyndir teknar | Photo date: 28.08.2014

Litirnir í mýrinni | Colors of iron

myravatn1-AslaugJ

♦ Föstudagsmyndin: Ég gekk um holt og mýrar í Leirársveit í gær. Það var þungskýjað og fjallasýnin kannski ekki eins og best verður á kosið. Þá er gott að muna að undrin geta verið rétt við tærnar á manni.

♦ Photo Friday: l went for a short hike in Leirársveit yesterday and passed some small ponds in the wetland. Several of them had these amazing colors from the iron-rich water.

Click on images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.

myravatn7-AslaugJ

myravatn8-AslaugJ

Ljósmyndir teknar | Photo date: 14.08.2014

Horft í vestur | Looking west

NVestur02ag2014-2

NVestur02ag2014-1

♦ Föstudagsmyndin: Mér hættir til að horfa frekar á skýin en skjáinn á sumrin. Allir hugsanlegir bláir og gráir tónar hafa fylgt rigningarskýjunum sem hvolfast yfir okkur dag eftir dag. Góðu dagana slæðast inn rauðir litir þegar kvöldar…
Fyrir ofan eru myndir frá sjávarbakkanum við Melaleiti 2. ágúst, en fyrir neðan er sitthvað í glugga – horft í sömu átt.

♦ Photo Friday: I haven’t posted anything on my blog for a while since I tend to stare more at the sky than the screen in the summer. There have been very few days without rain, so the clouds, in all shades of blue and grey, have dominated the landscape – with just a little bit from the red palette here and there every now and then in the evenings. Above is the view west (or northwest) from Melaleiti Farm, below same direction out of the window: Rhubarb”flower” in a glas and crane-flies, tangled up on the window pane.

RabarbarakrusJuli2014

 

Hrossaflugur8ag2014

Uppstytta | A pause in the rain

MelaleitiFjaran140714AslaugJ

♦ Föstudagsmyndirnar: Fjaran við Melaleiti og Melabakkar í uppstyttu 14. júlí, rigningasumarið 2014. Það er eins gott að skjalfesta þessar fáu stundir sem ekki rignir á suðvesturhorninu!
♦ Photo Friday: It is pretty clear to us now that we have another rainy summer in Southwest-Iceland. So you make a good notice when ever it clears up even just a little. This is my bid for my good-weather-moment this week.

Melabakkar140714AslaugJ

 

MelaleitiFjaran140714AslaugJ2

 

 

 

Ljósmyndir teknar | Photo date: 14.07.2014

Mávar og mannlíf | In Brighton

Brighton1AslaugJ

♦ Föstudagsmyndir: Ég var sumsé í Brighton á Englandi (út af þessu hér) og var með myndavélina, eins og sjá má. Brighton er dýrðlegur strandbær og þar má hafa fjölbreytt gaman í afslöppuðu andrúmslofti – og frískandi sjávarlofti. Allt er í göngufæri: ströndin, Brighton Bryggja, söfn og sögustaðir, verslanir og veitingastaðir, leikhús og grænir garðar.

Mávarnir eru einkennandi fyrir borgina og þeir eru býsna aðgangsharðir. Félagarnir hér fyrir ofan voru einmitt að leggja á ráðin. Nokkrum andartökum eftir að ég tók myndina tók annar þeirra dýfu og rændi lítinn snáða nestinu sínu. Ég hafði ekki hjarta í mér til að taka mynd af pilti. Hann hágrét, sár og svekktur. „Hvað ertu að skæla þetta?“ hlógu foreldrarnir og aðrir nærstaddir, með augljósri ádáun á ósvífnum varginum sem hafði nappað pylsunni úr höndunum á barninu.

♦ Photo Friday: I was in Brighton, UK. (Because of this). To cut it short: I loved the relaxed atmosphere, the sea air, the beach, the light, the colors, the Pier, the gardens, The Royal Pavilion, the museums, the nice restaurants and the narrow lanes … all in easy walking distance.

The seagulls are everywhere, flying high and low, crying, laughing – and pretty aggressive in their “fishing” among tourists and outdoor restaurant guests. Just seconds after I took the photo above, one of the seagulls dived down and snatched a hot dog from the hands of a young boy. When meeting his eye, I didn’t have the heart to take his photo. The poor boy cried his heart out in disappointment. His parents and people around him laughed: “What are you crying for?” Pretty obvious if you are hungry and someone just stole your lunch!

Click on images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.

Litir | Colors:

Lífið í görðunum | In the gardens:

 

Ljósmyndir teknar | Photos date: 03/04/05/06.2014

Jónsmessunótt | Midsummer night

SnurustMelaleiti240614AslaugJ

♦ Dagatalið: Jónsmessunóttin 2014, 24. júní kl 1:05. Ég missti reyndar af hinu rómaða daggar-baði, því döggin vék fyrir vindi og skýin hrönnuðust upp með tilheyrandi svala. Ég hefði betur drifið í því nóttina áður, því þá sat döggin á hverju strái. En í tilefni dagsins tíndi ég til myndir af sjö af mínum uppáhalds blómplöntum. Gleðilega Jónsmessu!

♦ The Calendar: Photos from June 24. at 1:05 am. It’s Midsummer – Jónsmessa – and last night was the magical Midsummer night. I didn’t get the chance to bathe in the early-morning dew, which is supposed to be a very healthy thing to do on that night. I should have picked the night before …  just see the photo below. But since herbs and flowers also have an extra magical healing power this night, I picked out seven of my favorite wild flowers and I hope they bring forth my wishes for a happy midsummer everywhere!

Borgarfjordur240614AslaugJ

♦ Fyrir neðan: 23. júní kl. 5:27. Sólin í norðaustri, hátt yfir Skarðsheiði.
♦Below: Early morning June 23. at 5:27 am. The morning sun above Skarðsheiði, Mt. Ölver.

Skardsheidi230614AslaugJ

 

Ljósmyndir teknar | Photo date: 23.-24.06.2014 +undated flower photography

Rauðir fætur | Red legs

tjaldur1©AslaugJ

♦ Föstudagsmyndir: Rauðir fætur og reiðir fuglar! Einhversstaðar kúrðu ungar í grasinu og tjaldurinn varði þá með miklum látum. Stelkurinn var öllu ljúfari en hávaðasamur líka og ég fékk húðskammir fyrir átroðninginn. Loftið ómar af fuglasöng nætur og daga, en hvell hættumerki frá stelk og tjaldi eru reyndar ekkert eyrnakonfekt.
♦ Photo Friday: Angry birds! The oystercatcher (Haematopus ostralegus) and the redshank (Tringa totanus) both had young chicks hidden in the grass and gave me a thorough scolding for intruding.

(Smellið á myndirnar til að stækka | Click on the images to enlarge).

Ljósmyndir teknar | Photo dates: 10.-11.06.2014

17. júní 2014 | The National Day of Iceland

17juni2014©AslaugJ

♦ Dagatalið: Í tilefni dagsins: Ég flaggaði auðvitað þótt ég kæmist ekki á Austurvöll til að fylgjast með forseta og forsætisráðherra … hipp húrra! Í fánastöng við hæfi! Annars eyddi ég megninu af deginum niðurrignd í rófugarðinum. Það var afar þjóðlegt. Og það ku hafa rignt ámóta fyrir 70 árum.
♦ The Calendar: Today was the National Day of Iceland, with celebrations of the 70th Independence Day. Of course I had to fly the flag! The weather was typical for the day: with pouring rain, and I spent most of it fighting dandelions in the vegetable garden. Very appropriate.

Ljósmynd tekin | Photo date: 17.06.2014

Folöld | Foals

FolJun1©AslaugJ

♦ Föstudagsmyndir: Það er erfitt að standast svona augnaráð! Þegar saman fer bjartasti tími ársins og nýfætt ungviði, eru það tröll ein, sem ekki kætast.
♦ Photo Friday: It’s hard to resist the charm and beauty of the newborn foals at the family farm in Melaleiti. Bright nights and all is well … it has to bring out a smile!
(Smellið á myndirnar til að stækka | Click on the images to enlarge).

Ljósmyndir teknar | Photo dates: 10.-11.06.2014

Eggjatími | Those were the days …

EggjatimiAslaugJ

♦ Föstudagsmyndin: Vorið gerir okkur hálf galin hér norður í svalanum. Núna væri ég til dæmis alveg til í að úða í mig svona eggjum. Einu sinni var sport í því að vafra um flóa og móa og leita að svartbakseggjum, eða sílamáfseggjum ef ekki vildi betur til. En það gaman er víst liðin tíð. Nýjar rannsóknir sýna að egg íslenskra sjófugla eru menguð af m.a. eldtefjandi efnum og skordýraeitri (PBDE, HBCD, PCB) (RÚV 16.04.2014). Fyrir mátti hafa áhyggjur af flakki lyfjaónæmra salmonellasýkla frá þauleldisbúskap yfir í villta fugla, sem er því miður staðreynd þar sem það hefur verið rannsakað.

Þarna er nú matarpólitík sem mætti æsa sig yfir. Lukkan er ekki endilega meira og ódýrara vöruúrval með tilheyrandi mengandi flutningum (þ.e. reikningurinn sendur annað). Það að geta ekki nýtt mat úr nærumhverfi sínu vegna mengunar er mun alvarlegra vandamál og víðtækara en nokkur utanríkisstefna, matarskattur eða hvalfriðunarsjónarmið, svo dæmi sé tekið. Skal ég þó ekki gera lítið úr þeim málum. En hvers virði er friðaður hvalur, fugl í bjargi, grös í móa ef það er allt óætt vegna margvíslegrar mengunar? Nature morte, gjörið svo vel.

♦ Photo Friday: This is an old photo. Sadly not my dinner tonight. In the early spring we used to collect eggs from seagulls such as great black-backed gull or herring gull. Great sport for us kids and a wonderfull dinner! Unfortunatly there are now news about the eggs of seabirds being contaminated with many sort of pollutants (e.g. PBDE, HBCD, PCB). Not to mention the grave fact that antibiotic-resistant bacteria from factory farms are spreading to wild birds. We may still be doing just a little bit better than the more densely populated areas and countries, but we are following in almost every wretched step along that gloomy track of pollution and bad food politics. Hopefully we can turn that around.

Today is the Food Revolution Day. “Let’s get kids excited about food”, says Jamie Oliver. I tell you, if kids could go and collect their food like we did, there would be no need for revolution. But we need it. In so many ways.

Fuglar á páskum | Easter birds

Hrafn2

♦ Ljósmyndir: Þrátt fyrir páskahretið syngur í mó. Farfuglarnir komu með sunnanáttinni og ég stóðst ekki mátið, skaut á þá með linsunni og taldi tegundir. Veit reyndar aldrei hvort ég greini ýmsar mávategundir rétt. Einn hefur fuglinn auðvitað verið hér í allan vetur: krummi svarti. Skógarþröstur, hrossagaukur og þúfutittlingur vildu ekki sitja fyrir á mynd, en létu í sér heyra.

♦ Photos: A solo raven is often the only bird you see in the winter near our farm. But now the migratory birds are enlivening the era with song and busy flights, even though the weather this Easter was extremely bad. Happy to see all the newcomers I went out with my camera and caught a few.

Fýll2

This slideshow requires JavaScript.

Brim

Brimið við Kotatanga

Ljósmyndir teknar | Photo date: 19.-21.04.2014

 

 

Luktar dyr | The doors of Old Tallinn

♦ Föstudagsmyndir: Dyrnar í gömlu Tallinn eru víða áberandi fallegar og nostursamlega málaðar í mismunandi litum. Hér er bara lítið sýnishorn. Fleiri myndir frá Tallinn hér í fyrri pósti.

♦ Photo Friday: I guess the colorful and fine-looking doors of old Tallinn have been photographed as often as an Icelandic geysir … But for me this is a memento of the nice walks I had around the city in early April.

Ljósmyndir teknar | Photo date: 03-05.04.2014